þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Hér fjallaði ég í síðustu ræðu minni um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á umgjörð okkar um útlendingamál til allrar framtíðar. Vitaskuld hafa útlendingamál verið til umræðu í Evrópusambandinu, rétt eins og á öllum Vesturlöndum, í auknum mæli á síðari árum eftir því sem það rennur upp fyrir almenningi og, með aðeins meiri töfum, stjórnmálamönnum hve misráðin stefna undanfarinna ára og áratuga hefur verið og hve áríðandi er að snúa henni við. En yfirvöld innan Evrópusambandsins hafa ekki alltaf tekið slíkri umræðu fagnandi, ekki síst þegar hún er sérstaklega óhentug fyrir þau yfirvöld. Það má eiginlega segja að aðferðir kerfisins til að komast upp með stefnu í útlendingamálum, sem er í raun og veru þvert á vilja almennings, hafi einatt falist í því að leita margvíslegra leiða til að kæla niður þessa umræðu, að leita leiða til að tryggja að hún komist sem minnst upp á yfirborðið. Til þess hafa ýmsar leiðir verið farnar. Ein ísmeygilegasta leiðin innan Evrópusambandsins er með margvíslegum takmörkunum í raun og veru á almennu tjáningarfrelsi borgaranna. Hér er mikilvægt að slengja ekki fram fullyrðingum án þess að styðja þær með rökum. Ég get rakið slíka þróun lengra aftur í tímann og enn lengra aftur í söguna en í kringum og eftir stóru flóttamannabylgjuna í Þýskalandi sáu þarlend stjórnvöld sig tilneydd til að gera ýmsar breytingar á lögum. Alltaf var það réttlætt með meintri hættu af hatursorðræðu en raunveruleg áhrif slíkrar lagasetningar og áhrif þess að slíkri lagasetningu sé framfylgt af mikilli hörku er að umræða á ákveðnum sviðum kælist mjög niður. Eftir að stjórnvöld í Þýskalandi stigu ákveðin skref í þessa átt með margvíslegum reglum um samfélagsmiðla og annað eins, heimildum stjórnvalda til að krefjast þess að ákveðið efni yrði fjarlægt á ýmsum fjölbreyttum forsendum, þá fylgdu fleiri Evrópusambandsríki því og svo sjálft Evrópusambandið með stórum aðgerðapakka undir titlinum Digital Services Act. Það er svona stafrænn pakki Evrópusambandsins sem felur mjög margt í sér en þetta er einn angi þess að veita stjórnvöldum ákveðið pólitískt samhengi og heimildir til þess að gera margvíslegar kröfur til samfélagsmiðla um það efni sem leyft er og hvaða heimildir stjórnvöld hafa til að krefja samfélagsmiðlana um að taka út ýmist efni.
Það er áhugavert í þessari umræðu að þegar maður bendir á jaðartilvik, sem eru reyndar ekki jaðartilvik heldur stórfjölgar þeim tilvikum þar sem verið er að taka fólk höndum fyrir tjáningu á netinu, hvort sem það er um útlendingamál eða kynjamál eða pólitíkina almennt, jafnvel bara einstaka nafngreinda pólitíkusa, t.d. í Þýskalandi, eins og ég hef fjallað um nýverið, að þegar maður bendir á þessi tilvik og að þeim sé að fjölga og setur þau í samhengi við umræðuna um Evrópusambandið og hagsmuni Íslendinga af því að ganga ekki inn í ríkjasamband, sem nú er en verður hugsanlega á síðari stigum sambandsríki, við vitum auðvitað ekki hvernig pólitíkin þróast þarna inni, það eru margir sem tala fyrir því, að ganga inn í slíka einingu sem er farin að hegða sér í stærsta ríkinu, Þýskalandi, með þessum hætti, þá er sagt: Heyrðu, þetta er bara Þýskaland sem þú ert að tala um, þetta hefur enga tengingu við Evrópusambandið sjálft. Það er algerlega falskur málflutningur. Þessi þróun er að gerast á vettvangi Evrópusambandsins og regluverks þess. Þessi stafræni pakki sem ég er að tala um, það er í raun og veru jafnvel hluti hans sem menn hafa talið hér á Íslandi að eigi erindi inn í okkar löggjöf á grundvelli EES-samningsins, þannig að tala um að það muni ekki reka hingað á Íslandsstrendur er mikil firra. Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu að með því að fara inn í Evrópusambandið erum við að takast á hendur gífurlega umfangsmikið regluverk sem veitir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, og eftir atvikum þjóðríkjunum, verulegar heimildir til að stýra því hvað má koma fyrir sjónir borgaranna á samfélagsmiðlum og heimildir stjórnvalda til að standa í mjög miklu stappi við samfélagsmiðlarisana. (Forseti hringir.) Það getur hins vegar verið málefnaleg ástæða til að ræða slíkar heimildir og ég kem vonandi inn á það í næstu ræðu ef ég get óskað eftir að vera settur aftur á mælendaskrá.