þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég rakti hér í ræðu minni hérna áðan nokkrar tölulegar staðreyndir til að varpa aðeins ljósi á hvað það þýðir í umræðunni að vera nettógreiðandi. Helstu tölur sem ég nefndi voru til að mynda að Króatía hefði fengið 26 milljarða evra frá því að þeir gengu inn í sambandið 2013 en aðeins lagt af mörkum u.þ.b. 6 milljarða evra. 26 milljarðar evra leiða til 2.880 milljarða íslenskra króna í meðgjöf til Króatíu. Ástæðan fyrir að ég nefni þetta aftur er að það þarf að vera samhengi því að ég hyggst, herra forseti, halda mig við tilvitnun í sömu grein af vefnum stjórnmálin.is. Þar segir, með leyfi forseta:
„Fyrir vikið er áhugavert svo ekki sé meira sagt þegar harðir Evrópusambandssinnar, eins og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson stjórnmálafræðingur, halda því fram að Ísland þurfi að ganga í Evrópusambandið til þess að komast í sjóði þess. Í grein sem hann ritaði á Vísi“ — herra forseti, hér segir um helgina en þetta er skrifað 24. maí — „tók hann meira að segja Króatíu sem meint dæmi um það hvernig Íslandi myndi farnast innan sambandsins í þeim efnum. Þetta mikla flæði fjármagns úr sjóðum Evrópusambandsins til Króatíu hefur verið helzta forsenda fjárfestinga í landinu sem hafa nær alfarið komið frá öðrum ríkjum innan sambandsins.
Við Íslendingar yrðum hins vegar á hinum endanum eins og áður segir og myndum greiða fyrir áframhaldandi uppbyggingu innviða í Króatíu og hinna 16 ríkja Evrópusambandsins sem fá meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá. Meira en 20 ár eru liðin frá því að flest þessara ríkja gengu í sambandið og sér ekki fyrir endann á því. Gunnar gat þess að Króatía hafi fengið meira frá Evrópusambandinu en landið hefði greitt til þess, vildi meina að það mætti yfirfæra á Ísland og minntist fyrir vikið auðvitað ekkert á það að við myndum þvert á móti verða í hópi þeirra ríkja sem borga brúsann.“
Þessi grein er ágæt yfirferð á tiltölulega afmörkuðum þætti málsins sem er að útskýra hvað er að vera nettógreiðandi. Það er, eins og ég hef farið hér yfir, að byggja upp innviði 16 annarra ríkja sem hafa með stuðningi í allt að 20 ár ekki breytt stöðu sinni innan Evrópusambandsins hvað það varðar að vera enn þá þiggjendur en ekki nettógreiðendur. Ísland færi hins vegar beint á lista hinna þjóðanna sem taka þátt í að greiða upp þessa innviði. Allt tal um einhverja meinta styrki til handa Íslandi, í formi einhverra vegasamgangnastyrkja, byggðastyrkja — ja, það er nú varla hægt að tala um styrki til landbúnaðar því að áðurnefnd dæmi um Finna og Svía, sem hafa ítrekað borið á góma, eru í raun og veru ekkert annað en leyfi þeirra ríkja til að styrkja sinn landbúnað norðan 62. breiddargráðu, þannig að það er ekki einu sinni marktækur samanburður. Slíkt tal um að hér yrði einhver gróði fólginn í því vegna styrkjakerfis ESB að ganga þar inn heldur engu vatni. Þetta er ekki bara eitthvað sem við í minni hlutanum erum að halda fram, við vorum reyndar tiltölulega fámenn í því til að byrja með en okkur hefur fjölgað við frekari umræður. Þessum hópi hefur fjölgað það hratt að nú eru orðnir þingmenn í meiri hlutanum, herra forseti, sem segja bara orðið: Já, þetta er rétt. Ísland verður nettógreiðandi inn í Evrópusambandið. Það er ekki lengur umdeilt að við myndum gefa meira frá okkur heldur en við munum þiggja í einhverjum viðurgjörningum frá Brussel. Þetta er atriði, herra forseti, sem verður að liggja algerlega kýrskýrt fyrir þegar þjóðin tekur ákvörðun um það hvort það eigi að fara í þessa aðlögunarvegferð sem hefst, kjósi þjóðin já, 29. ágúst næstkomandi. Þá er þjóðin að taka ákvörðun um það að taka þátt í því að byggja upp innviði 16 aðildarríkja ESB og ekki um neinar smáupphæðir eins og ég hef hér farið yfir, herra forseti. — Ég óska eftir því, herra forseti, að vera settur aftur á mælendaskrá.