157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:57]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Í annarri ræðu minni hér rétt á undan fjallaði ég um þrjár tegundir af frávikum frá almennum reglum Evrópusambandsins og nefndi sérstaklega varanlega undanþágu. Ég ætla að ítreka hér að það er alger forsenda frá mínum bæjardyrum séð og ég held allrar þjóðarinnar, alger forsenda fyrir því að eiga samtal við Evrópusambandið, að menn viðurkenni það fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna að um allar auðlindir okkar, einkum auðlindir hafsins, fari í þessum aðildarviðræðum þannig að þær verði bundnar varanlegum undanþágum frá almennum reglum Evrópusambandsins.

Ég nefndi það líka og ætla ekki að fara aftur yfir það nema bara að nefna það að varanlegar undanþágur, eins og það er kallað í Evrópuréttinum, er eina form frávika frá Evrópusambandslöggjöfinni allri sem veitir varanlega og kerfisbundna réttarvernd gagnvart síðari breytingum á almennri ESB-löggjöf. Þess vegna er það svo mikilvægt að menn viðurkenni það, ráðherrar og stjórnvöld sem ætla að fara fyrir aðildarviðræðum, og segi þjóðinni og lofi þjóðinni því að ekki verði farið í þessar aðildarviðræður öðruvísi en að gerð verði krafa um að fyrir auðlindir okkar verði gerð varanleg undanþága. Það þýðir að það þarf samþykki allra aðildarríkja til að breyta slíkum varanlegum undanþágum. Þetta er eins og regluverk Evrópusambandsins er í dag.

Nú berast hins vegar fréttir af því að m.a. kanslari Þýskalands og fleiri leiðtogar Evrópusambandsins sem eru áfjáðir eða áfram um að stækka sambandið til austurs, taka inn gömlu austantjaldsríkin í ríkara mæli en þegar hefur verið gert — þeir vita að það er erfitt að selja mörgum ríkjum Evrópusambandsins í vesturhluta sambandsins þá hugmynd — eru að leggja til að við inngöngu þessara nýju ríkja sem eru í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, sem telja held ég níu eða tíu ríki og Ísland myndi bætast í þann hóp, verði þeim gefinn kostur á að ganga í Evrópusambandið með því skilyrði að þau hafi ekki neitunarvald fyrstu árin í sambandinu. Þau muni ekki hafa neitunarvald fyrstu árin. Þetta er gert vegna þess að leiðtogar Evrópusambandsins vita sem er að, hvað á maður að segja, þau ríki sem halda uppi Evrópusambandinu ætla ekki að sæta því að þessi, eins og þau líta á það, smáríki, fátækari ríki sem núna vilja banka upp á og komast inn í Evrópusambandið, fái einhvers konar neitunarvald í þeim ákvörðunum sem stóru ríkin telja að þurfi að taka.

Mér þykir miður og í rauninni allsendis ómögulegt að þessi þróun og þessar hugmyndir Evrópusambandsins hafi ekki fengist ræddar í þeim nefndum sem hafa fjallað um þessa þingsályktunartillögu, utanríkismálanefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, alls ekki, og þaðan af síður hefur ráðherrann sem fer með þetta mál, hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, séð ástæðu til að koma hér inn í þingsal og ræða þessar vendingar, þessar nýju fréttir sem voru nú bara að berast fyrir nokkrum dögum af þessum hugmyndum kanslara Þýskalands og fleiri forystumanna í Evrópusambandinu, ræða þessar hugmyndir hér og máta þær við áform íslenskra stjórnvalda um að sækja um aðild að Evrópusambandinu með aðildarviðræðum á næsta vetri. Íslenska þjóðin á kröfu til þess (Forseti hringir.) að menn ræði þessi mál fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna og álitaefni eins og þessi sem eru að koma upp þessa dagana við þjóðina fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.