157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:02]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Ég hef reynt hér í nokkrum síðustu ræðum að komast inn í gagnabeiðni fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, en það er bara svo margt sem þarf að ræða að maður kemst illa inn í það mál. En áður en ég fer í það mál þá ætla ég enn og aftur að æskja þess að létt verði leynd af þessum leynigögnum sem hér eru læst inni í einhverju herbergi sem engir fá aðgang að nema níu fulltrúar sem eiga fast sæti í utanríkismálanefnd. Fyrir mér er það fullkomlega óboðlegt. Það þurfa allir þingmenn að fá að sjá þessi gögn og þjóðin þarf að fá að sjá þau líka vegna þess að þau munu væntanlega varpa ljósi á samskipti núverandi utanríkisráðherra og hennar ráðabrugg með kollegum sínum og embættismönnum í Brussel. Auðvitað væri það, herra forseti, eðlilegast að það yrði gert hlé á þessum fundi, utanríkismálanefnd yrði kölluð saman og myndi ræða hvernig hægt væri að létta leynd af þessum gögnum þannig að hægt væri að ræða þau hér í þingsal og þau birt þjóðinni. Það er ekkert nema eðlilegt við það.

Að þessu sögðu þá ætla ég að þessu sinni að komast inn í gagnabeiðni fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, en hann hefur orðið fyrir því að utanríkisráðuneytið hefur ítrekað neitað honum um afrit af gögnum frá hans eigin embættistíð og til þess að reyna að særa út þessi gögn hefur hann þurft að ráða sér lögmann til að reyna að fá afrit af þessum gögnum. Þetta er fullkomlega óboðlegt, ekki síst vegna þess að ráðherrar hljóta að bera ráðherraábyrgð. Hvernig geta menn borið ráðherraábyrgð ef þeir hafa ekki einu sinni aðgang að gögnum er varða eigin embættisfærslur nánast og embættismanna á hans vegum sem hann treysti á sínum tíma?

Ég ætla að fara inn í þessa gagnabeiðni vegna þess að hún er áhugaverð. Það er nefndarmaður í utanríkismálanefnd sem óskar eftir því að fá upplýsingar um hvaða gögn það eru sem ráðherrann fyrrverandi fær ekki aðgang að. Og nú ætla ég að fara yfir ósk fyrrverandi ráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, sem þurfti að ráða sér lögmann til að senda hana, með leyfi forseta:

„Afrit af öllum gögnum og samskiptum er varða umsókn og lúkningu þeirrar umsóknar að Evrópusambandinu árið 2009, þar með talið samskipti er varða viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu þann tíma er umbj. minn, Gunnar Bragi Sveinsson, gegndi embætti utanríkisráðherra, sem var frá 23. maí 2013 til og með 8. apríl 2016. Þar er nánar tiltekið átt við minnisblöð, bréf (tölvubréf og sendibréf), skilaboð, orðsendingar, hvers kyns samskipti ráðuneytis við framkvæmdastjórn ESB og forustulönd þess, á hverjum tíma, embættismenn ESB og embættismanna Íslands, milli embættismanna og utanríkisráðherra, þar með talið gögn kringum bréfaskriftir umbj. míns og Evrópusambandsins á vormánuðum 2015, milli sendiráðs Íslands í Brussel og embættismanna eða/og forustumanna ESB, skýrslur birtar og óbirtar, greinargerðir og öll önnur gögn tengd málinu.“

Því er skemmst frá að segja að þessu erindi var hafnað með bréfi dagsettu 22. apríl nema örfá gögn voru afhent. Það var neitað að afhenda lykilgögn um samskipti ráðuneytisins og embættismanna við Evrópusambandið. Það var í engu vísað til ábyrgðar ráðherra í neitun ráðuneytisins. Eftir stendur, forseti, að ráðuneytið neitar að afhenda fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, fjölda gagna, þar með talið bréf, skilaboð, orðsendingar og fleira er varðar samskipti þáverandi ráðuneytisstjóra og annarra embættismanna við kollega sína í Brussel. Óneitanlega vekur þetta upp spurningar og hlýtur að teljast í hæsta máta óeðlilegt. — Ég óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá, herra forseti.