þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég verð að byrja aftur á því að minna hæstv. forseta á mikilvægi þess að leynigögnin verði frelsuð svo hægt sé að leiða fólki fyrir sjónir, ekki bara hv. alþingismönnum heldur almenningi líka, hvaða afleiðingar það hafi ef menn segja já í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig vil ég taka undir með hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur um mikilvægi þess að gögn Gunnars Braga Sveinssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, fáist afhent þó ekki væri nema að hann sjálfur fengi gögnin frá sinni ráðherratíð því þau varpa ljósi á annan þátt málsins sem lýtur að því þegar viðræðum var endanlega slitið og er augljóslega nátengd þeirri tillögu sem hér er til umræðu og má segja að varði bara grundvöll hennar.
Ég er að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og var kominn að kaflanum sem heitir: Hvað þýða valkostirnir? Í þeim kafla rekur 2. minni hluti hvað kostirnir feli raunverulega í sér eftir því sem næst verður komist því það er búinn að vera vandi að fá það á hreint um hvað verði kosið. Það þýðir ekki að segja bara: Leyfum þjóðinni að ráða og veita henni engar upplýsingar um hvað hún er að fara að velja um. Fyrst er farið yfir valkostinn nei og hvað gerist ef sagt verði nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Það hafa ekki fengist skýringar á því. Til að mynda liggur ekki fyrir hvort að þeir sem tala fyrir þessu máli líti svo á að þá sé málið úr sögunni, að þá sé allt tal um að umsóknin sé gild og allt þetta, að þá sé það úr sögunni. Engin svör fást við því og fyrir vikið er ekki hægt annað en að álykta sem svo að segi menn nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þá breytist ekkert. Þá sé staðan bara sú sama og hún er núna og menn geti hugsanlega tekið upp á því síðar að halda því fram að umsóknin sé enn þá gild eða virk eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur kallað það, sem er nú heldur langt seilst um umsókn sem hefur ekki verið rædd í 13 ár og löngu staðfest og ítrekað af Evrópusambandinu að Ísland sé ekki umsóknarríki. En við fáum engin svör við því hvað nei þýðir. Fyrir vikið skulum við bara gera ráð fyrir því að þá breytist ekki neitt, þá sé óbreytt staða.
Öllu stærri spurning er: Hvað gerist ef kjósendur segja já? Við heyrðum það á blaðamannafundinum þar sem þessi áform voru kynnt nokkuð óvænt eða mjög óvænt að menn hefðu lesið um áform íslenskra stjórnvalda í erlendum miðlum, að já myndi ekki þýða neitt annað en að þá bara höldum við áfram að tala við ESB, þá bara spjöllum við við þá áfram á sömu forsendum og síðast, þ.e. við ætlum að endurlífga umsóknina sem var dregin til baka á sínum tíma. Þá fást engin svör við því hvort þau skilyrði sem þar voru lögð til grundvallar gildi enn né hvort stjórnarmeirihlutinn líti svo á að Ísland sé skuldbundið af því sem Evrópusambandið sjálft lagði til grundvallar í forsendum sínum fyrir þeim viðræðum. Þetta er gagn málsins sem var ekki lagt fyrir utanríkismálanefnd. Það birtist í fjölmiðlum. Morgunblaðið dró fram þessar forsendur ESB fyrir þeim aðildarviðræðum sem nú er leitast við að endurvekja. Þar er Evrópusambandið mjög afdráttarlaust, eins og ég hef þegar rakið í yfirferð minni yfir álit 2. minni hluta utanríkismálanefndar. En það vekur engu að síður fleiri spurningar (Forseti hringir.) sem ég sé að ég þarf að svara í næstu ræðu og bið hæstv. forseta að skrá mig aftur á mælendaskrá.