þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Eitt sem hefur borið á góma varðandi inngöngu í Evrópusambandið og við erum oft spurð sem erum hér á Alþingi er: Hvað þýðir þetta? Hvað þýðir þetta fyrir unga menn á Íslandi? Munu þeir búa við herskyldu? Munu þeir þurfa að taka þátt í evrópskum her? Staðreyndin er sú að það er ekki sameiginlegur evrópskur her í dag en við ættum kannski að velta því upp: Myndi Ísland ef það gengi inn í Evrópusambandið og það væri vilji Evrópusambandsins að hafa sameiginlegan her — því vissulega er Evrópusambandið þannig byggt upp að það er risastórt bákn sem tekur til sín meira og meira. Ég held að það þyrfti að liggja fyrir afstaða hæstv. ráðherra þessarar ríkisstjórnar ef sú staða kemur upp, og það ætti auðvitað að taka það fyrir í nefndarálitinu, að Evrópusambandið leggi til núna á þessum óvissutímum, sem geta orðið verri en við vonum auðvitað ekki, og vilji vera með sameiginlega herskyldu. Hvar ætlar Ísland að standa þá? Ætlum við kannski eitt ríkja að segja nei, standa í lappirnar? Miðflokkurinn myndi gera það en hvað myndu aðrir flokkar gera? Myndu þeir standa gegn mögulega öllum öðrum löndum Evrópusambandsins og segja: Nei, þessu tökum við ekki þátt í. Ísland er herlaust land, Ísland vill halda sig þar.
Þetta er eitt af þeim málum sem skipta máli fyrir framtíð Íslands. Það skiptir máli fyrir komandi kynslóðir hvernig þessu verður háttað. Fyrir mér er það alveg skýrt að það þarf að liggja fyrir í nefndaráliti að þetta er rautt strik. Þetta er rautt strik sem Ísland fer ekki yfir.
Við vitum að Viðreisn, sem keyrir þetta mál áfram, vill fara í Evrópusambandið, sama hvað. Þau telja að hagsmunum okkar sé betur borgið innan þess en utan og þau hafa talið það, óháð öllu. Þau eru búin að taka tillit til þess að það hefur enginn fengið varanlega undanþágu frá sjávarútvegsstefnunni. Engu að síður vilja þau ganga inn í Evrópusambandið. Þess vegna hafa þau ekki viljað setja þessar rauðu línur, draga rauðu línurnar, hvar væri sett stopp, eins og var gert síðast, við förum ekki inn. Það er búið að ganga á eftir þessu aftur og aftur þannig að niðurstaðan er sú að við erum að fara að afhenda Viðreisn opinn tékka til að semja um framsal á hluta af fullveldinu til Brussel ef við segjum já hér í haust.
Virðulegur forseti. Mig langar að ná að koma inn á nokkur orð sem hv. varaþingmaður minn, Eiríkur Svavarsson, ritaði á fésbókarsíðu sína og mér finnst þurfa að koma fram. Ég ætla, með leyfi forseta, að vitna til þeirra orðrétt:
„Klofin ríkisstjórn leitar eftir umboði þjóðarinnar til að sækja um aðild að Evrópusambandinu á grundvelli umsóknar frá árinu 2009. Ein grundvallarbreyting er þó gerð núna ólíkt ferlinu 2009. Nú á ekki að setja þau rauðu strik sem Alþingi setti framkvæmdavaldinu árið 2009. Þannig er það t.d. ekki skilyrði vegferðarinnar nú að Ísland hafi varanlegt og óskorað forræði á auðlindum þjóðarinnar. Nú á að taka rauðu strikin úr sambandi, hafa þau bara til hliðsjónar og krafan er sú að þjóðin veiti utanríkisráðherra fullt svigrúm til að víla og díla um grundvallarhagsmuni íslensku þjóðarinnar. Á sama tíma eru 297 blaðsíður af gögnum, sem beinlínis varða það ferli sem nú er óskað eftir umboði frá þjóðinni fyrir, lokuð inni í skáp og aðeins tilteknir þingmenn þjóðarinnar mega skoða þau gegn trúnaði um að þeir muni aldrei á ævi sinni upplýsa né ræða þau skjöl. Hvert eru eiginlega stjórnmálin komin? Hversu takmarkalaust getur virðingarleysið orðið gagnvart þjóðinni og almenningi. Hér öskra allar viðvörunarbjöllur.“
Virðulegur forseti. Þetta er það sem við erum að reyna að fá aflétt leynd á fyrir íslensku þjóðina. — Ég óska eftir að vera sett aftur á mælendaskrá.