þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég fjallaði í fyrri ræðu um annars vegar innflytjendamál og hins vegar stöðu tjáningarfrelsis og umgjörðar þar um hjá Evrópusambandinu og leiðandi ríkjum innan sambandsins, en hef auðvitað á fyrri stigum reynt að leiða það fram hér fyrir þá sem eru að hlusta hvað felst í því að samþykkja þessa þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu og í kjölfarið, ef svarið er já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, hvað tekur þá við. Þar tel ég mikilvægt á þessu stigi að árétta að í raun og veru hafa teiknast upp tvær sviðsmyndir í því efni. Annars vegar að ríkisstjórnin, hafandi fengið þetta umboð frá þjóðinni til að fara og sækja um aðild að Evrópusambandinu, fari af fullum þunga inn í það ferli og geri það sem Evrópusambandið gerir ráð fyrir að umsóknarríki geri í slíku ferli. Hér á eftir ætla ég að fara yfir hvað felst í því eða hvaða mynd við getum gert okkur af því hvað þetta ferli fæli í sér. Hin sviðsmyndin, ef við sjáum fyrir okkur að svarið sé já, er að ríkisstjórnin, verandi eins ósamstiga og hún er í raun og veru gagnvart þessu máli, fari á ýmsum sviðum, í ýmsum handtökum og verkþáttum þessa ferlis að draga lappirnar þannig að það hægist í raun og veru mjög á ferlinu. Það tefst, það verður ekki úr neinu, samningarnir ganga hægt, menn hika og ýta hlutum á undan sér, fara að missa meira og minna trú á ferlinu einn af öðrum þannig að þetta verði einhvers konar átök innan stjórnar fyrir opnum tjöldum árum saman. Sumir hafa sagt að þetta geti tekið eitt eða eitt og hálft ár, aðrir hafa sagt að þetta geti tekið þrjú eða fjögur ár. Þaðverði sem sagt átök fyrir opnum tjöldum innan stjórnar um það hvernig beri að hátta þessu grundvallarverkefni sem þjóðin stendur frammi fyrir, að nálgast þetta aðildarferli sem við erum í.
Þetta eru sviðsmyndirnar tvær og varðandi þá sviðsmynd sem ég nefni þar sem menn eru ósamstiga er full ástæða til að hafa áhyggjur af því að hún sé sviðsmyndin sem taki við núna vegna þess að menn hafa sagt hér skýrt að þeir séu ekki að fara í síðari atkvæðagreiðslu nema þeim líki samningurinn og að stjórnarflokkarnir standi með samningnum. Þetta gefur til kynna strax löngu áður en sjálft aðildarferlið er hafið að það megi ekki vænta þess af hæstv. ríkisstjórn að hún nálgist þetta verkefni af einurð og samtakamætti, heldur verði þetta mögulega eitthvert bitbein sem leiði til þess að þjóðin er skilin eftir og ríkisstjórnin getur ekki komið sér saman um það hvernig hún á að nálgast verkefnið. Þá getur þetta orðið áralangt dauðastríð þessarar aðildarumsóknar sem þó er farið af stað með án þess að grundvallarforsendan sé fyrir hendi, sem er að mínu mati grundvallarforsenda fyrir svona ferli, og hún er að ríkisstjórnin geti sameinast um málið. Þessi sviðsmynd er því verulega líkleg.
Síðan er hin sviðsmyndin sú að utanríkisráðherranum sé falið þetta umboð, þetta gífurlega mikla umboð frá þjóðinni til að fara í þetta án þess að við vitum fyrir fram hverjar rauðu línurnar eru og án þess að menn hafi í raun og veru komið hreint og skýrt fram með það gagnvart þjóðinni hvað þetta felur í sér.
Það er vel hægt að sjá fyrir sér hvað svona aðildarferli felur í sér. Við getum byggt það á því hver nálgunin var hér frá 2010–2013. Þar er það algjörlega hreint og klárt útlistað í gögnum málsins hvernig Evrópusambandið nálgast svona aðildarferli, hvað aðlögunin felur í sér. — Nú sé ég reyndar að mér gefast aðeins 40 sekúndur í viðbót til að fjalla um þetta mál, en grundvallarforsendur aðlögunarinnar, skrefin sem eru stigin á öllum sviðum samfélagsins í að laga Ísland að Evrópusambandinu, fyrir þeim er gerð ágæt grein í nefndaráliti 2. minni hluta utanríkismálanefndar og ég vonast til að fá tækifæri hér í næstu ræðu til að fara aðeins ofan í hvað það felur í raun og veru í sér, hvað við værum að gera á næstu árum ef svarið yrði já. Það er ágætt tækifæri í þessu nefndaráliti til að gera sér grein fyrir því. Ég vonast því til þess að komast í það í næstu ræðu og óska því eftir að vera (Forseti hringir.) settur að nýju á mælendaskrá.