þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hæstv. ríkisstjórn hefur á margan hátt reynt að fegra hugsanlega aðild að Evrópusambandinu með ýmsum gylliboðum sem þar eiga að bjóðast. Eitt af því sem hæstv. ríkisstjórn hefur mikið rætt um er að ef við gengjum í Evrópusambandið og tækjum upp evru þá myndi allt fara á besta veg, vextir myndu lækka, verðbólga myndi hverfa og allt yrði í blóma. Hæstv. ríkisstjórn hefur reynt að ginna fólk til stuðnings við þessa tillögu sem við erum að ræða hér með því að upptaka evru myndi þýða snarlækkun vaxta hér á landi og koma þannig húsnæðiseigendum og -kaupendum til góða. Staðreyndin er sú, frú forseti, að Evrópusambandið leyfir engri þjóð að taka upp evru nema hún hafi áður sjálf tekið á eigin málum þannig að vextir og verðbólga séu áþekk því sem gerist og gengur í Evrópusambandinu. Þetta hef ég farið yfir í fyrri ræðum. Það er ríkisstjórnin sjálf, hæstv. ríkisstjórn, sem þarf að taka til í ríkisfjármálunum. Mér hefur orðið tíðrætt um að ríkisstjórnin hefur heykst á því að taka á ríkisútgjöldunum. Hún hefur hækkað skatta og aukið ríkisútgjöld. Yrði evran gjaldmiðill á Íslandi værum við algjörlega berskjölduð fyrir áhrifum efnahagsáfalla sem t.d. tengjast sjávarútvegi en snerta ekki þjóðirnar á meginlandi Evrópu. Slík efnahagsáföll hefðu engin áhrif á evruna, frú forseti, engin áhrif. Þannig gæti aðlögun vegna slíkra áfalla hér á landi ekki farið fram um farveg gjaldmiðilsins eins og við þekkjum mætavel hér á landi heldur myndi birtast í auknu atvinnuleysi, frú forseti.
Með því að taka upp evruna værum við að opna á þann möguleika að áföll sem við þekkjum allt of vel og hafa endurspeglast hingað til í breyttu gengi krónunnar — við höfum margoft séð þetta hér á landi. En eftir upptöku evru myndu þessi áföll birtast í stórfelldu atvinnuleysi, allt eftir stærð áfallanna. Atvinnuleysi er hið mesta böl sem fólk getur lent í. Atvinnuleysi snýst um að fólk getur ekki aflað sér lífsviðurværis. Við hér á Íslandi höfum mestan part verið laus við atvinnuleysi hingað til vegna þess að krónan hefur tekið á sig aðlögunina en með evrunni yrði það vinnandi fólk sem myndi gjalda fyrir það með því að missa vinnuna. Hvernig væri, frú forseti, að hæstv. ríkisstjórn viðurkenndi þessar staðreyndir í stað þess að blekkja fólk með tröllasögum um að upptaka evru myndi færa hér allt í hið besta horf?
Frú forseti. Hvernig væri að hæstv. ríkisstjórn segði okkur sannleikann? Efnahagsáföll liðinna áratuga hafa alltaf birst í því að krónan hefur veikst, ekki í atvinnuleysi. Slík áföll, ef við værum með evru, myndu bitna á atvinnumöguleikum fólks. Það myndi ekki snerta meginland Evrópu heldur birtast í atvinnuleysi á Íslandi. Það er meginatriði, frú forseti, að þetta liggi fyrir og fólk átti sig á þessu: Efnahagsáföll myndu birtast hér í auknu atvinnuleysi.