þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Í þessari ræðu ætlaði ég að fjalla aðeins um þessa blessuðu greinargerð sem fylgir með þingsályktunartillögunni sem er nú ekki þykk í sniðum, ansi þunn, sem sætir furðu þar sem hér er um risastórt mál að ræða og sennilega eitt stærsta mál sem inn í þingið hefur komið frá því kannski að EES-samningurinn var samþykktur. Ég ætla ekkert að útiloka það, ég meina, þetta er miklu stærra mál heldur en aðild Íslands að EES, miklu stærra mál. Við erum að tala um Evrópusambandið sem er yfirþjóðlegt apparat. EES-samningurinn er bara samningur sem veitir Íslandi aðgengi að innri markaði Evrópusambandsins. Sama með NATO, þ.e. Atlantshafsbandalagið, sama með Fríverslunarsamtök Evrópu sem við eigum aðild að, allt annað mál. En hér erum við að ræða um aðildaráfergju, aðallega Viðreisnar, að þessu Evrópusambandi sem er verið að reyna að þvinga í gegnum þingið með þjóðaratkvæðagreiðslu og það er bara byrjunin ef þjóðin samþykkir þetta vonda mál, sem ég vona svo sannarlega að hún geri ekki.
Það er ekki margt og eiginlega ekkert sem kemur fram í greinargerðinni en það er þó eitthvað að græða á nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Þar kemur fram atriði sem ætti að fá alla bændur þessa lands, alla landsbyggðina, alla þá sem er umhugað um innlenda matvælaframleiðslu, allt þetta fólk, til að greiða atkvæði gegn þessari þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Það er vegna þess að það kemur fram í greinargerð eða nefndaráliti meiri hlutans að með aðild verði tollvernd felld niður á innflutning landbúnaðarvara frá Evrópusambandsríkjum. Tollverndin er eitt það mikilvægasta fyrir íslenskan landbúnað þannig að þeir sem eru að hlusta hérna úti, sem ég vona að séu að fylgjast með þessu, ég er svo sem búin að fá mikið af skilaboðum frá fólki þannig að ég veit að það er verið að fylgjast með þessu og ég hvet fólk, ef það trúir mér ekki hérna úr þessum ræðustól, til þess að lesa greinargerð eða nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar þar sem þetta kemur fram skýrum stöfum.
Mig grunar að þetta sé nákvæmlega ástæðan fyrir því að í aðlögunarviðræðunum sem var hætt á sínum tíma var þessi kafli ekki opnaður, samningsmarkmiðum var ekki skilað, vegna þess að menn vissu að það eru engar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Það er kannski hægt að fá tímabundnar sérlausnir en það er ekki undanþága frá regluverki ESB. Það eru engar varanlegar undanþágur. Við skulum bara spyrja Finna og spyrja Svía. Þeirra undanþágur eru að renna út á næsta ári og þarnæsta ári, eða sérlausnir eða hvað menn vilja kalla þetta. Menn þurfa að átta sig á því að þessi ríkisstjórn sem hér situr segir það bara svart á hvítu í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar. Þar með er það að sjálfsögðu í boði utanríkisráðherra Viðreisnar, sem er utanríkisráðherra þessa lands nú um stundir, að það á að afnema tollvernd af landbúnaðarvörum frá Evrópusambandsríkjum strax ef Ísland gengur í þetta bandalag. Það eitt fær mig — ég þyrfti í raun og veru ekki að lesa meira, ég þyrfti í raun og veru ekki að vita neitt meira — til að segja nei vegna þess að ég stend vörð um íslenskan landbúnað, innlenda matvælaframleiðslu, fæðuöryggi og þar með þjóðaröryggi. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.