157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:40]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Enn og aftur verð ég að byrja á því að minna hæstv. forseta á beiðni okkar margítrekaða um að hlutast verði til um það að leyniherbergið verði opnað og leynigögnin frelsuð svo að hv. þingmenn og almenningur á Íslandi geti gert sér einhverja grein fyrir því um hvað verði kosið í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég minni einnig á þau gögn sem Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur beðið um um ráðherratíð sína í ráðuneytinu.

En ég var að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og var kominn að kaflanum sem heitir Hvað þýða valkostirnir? Ég var búinn að rekja að það er allt á huldu um hvað nei þýðir en ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að segi menn nei sé bara allt óbreytt frá því sem nú er og var byrjaður að fara yfir áhrifin af því að segja já. Þetta er það sem meiri hlutinn á Alþingi og hæstv. ráðherrar hafa leitast við að koma í veg fyrir að komi fram, grundvallargögn málsins sem varða þetta, varða stöðuna eins og hún horfir við Evrópusambandinu. Þau fást ýmist ekki afhent eða eru bundin þeirri leynd sem ég gat um í upphafi. Þær upplýsingar sem við í utanríkismálanefndinni fengum síðan um hvað taki við og afstöðu Evrópusambandsins ef haldið verður áfram með þetta ferli eða það endurvakið, endurlífgað, voru ekki lagðar fram í nefndinni heldur birtust í fjölmiðlum þegar dúkkaði upp samningsafstaða Evrópusambandsins vegna aðildarumsóknar Íslands á sínum tíma.

Við höfðum leitað eftir því, hv. þingmenn minni hlutans í utanríkismálanefnd, að nefndin hefði einfaldlega samband við Evrópusambandið og spyrði hvernig þetta horfði við sambandinu ef umsókn yrði lögð fram á þeim forsendum sem lagt er upp með í þessari þingsályktunartillögu. Þetta mál var þæft og tafið vikum saman, þessi beiðni um upplýsingar, þangað til undir lokin að það var haldin atkvæðagreiðsla í utanríkismálanefndinni þar sem spurt var: Hverjir eru hlynntir því að Evrópusambandið verði spurt um þetta, að leitað verði upplýsinga frá Evrópusambandinu? Með því greiddu atkvæði fulltrúar minni hlutans. Og hverjir eru á móti? Með því greiddu atkvæði allir hv. þingmenn meiri hlutans í nefndinni. Þetta var sérstaklega sláandi í ljósi þess að skömmu áður höfðu fulltrúar Feneyjanefndarinnar á fundi með bæði utanríkismálanefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd bent á að það gæti verið ráð til að eyða óvissunni um hvað já þýðir, af því að það var mikið áhersluatriði hjá fulltrúum Feneyjanefndarinnar, eins og reyndar hjá landskjörstjórn, að það væri á hreinu hvað já þýddi, að spyrja Evrópusambandið hvernig málið horfði við því ef sagt yrði já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. En beiðni þar um var sem sagt hafnað í formlegri atkvæðagreiðslu í utanríkismálanefnd. Það hlýtur að teljast merkilegt að það séu sérstaklega greidd atkvæði um það í nefnd að hafna beiðni um upplýsingar sem voru til þess ætlaðar og mælt með af hálfu Feneyjanefndarinnar til að skýra hvað fólk er að fara að kjósa. Því var hafnað og kom, eins og ég nefndi áðan, í framhaldi af hinum ýmsa fyrirslætti fyrir því að ekki væri hægt að gera þetta. Eitt af því sem var nefnt, frú forseti, var að við gætum ekki krafist upplýsinga frá Evrópusambandinu á grundvelli þingskapalaga. Við bentum að sjálfsögðu bara á að við þurfum ekkert að vísa í þingskapalög, (Forseti hringir.) við bara sendum Evrópusambandinu bréf og spyrjum þá hvort þeir hafi ekki heyrt af hugmyndum íslenskra stjórnvalda (Forseti hringir.) um að sækja um aðild.

Frú forseti. Ég var nú við það að ljúka þessum kafla en ég verð að gera það í næstu ræðu og bið þess vegna um að verða skráður aftur á mælendaskrá.