þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Áður en við ræðum inngöngu í Evrópusambandið þurfum við að vita um hvað verður samið. Hvaða hagsmuni vill þjóðin verja? Við þurfum að vita hvort skilyrði um full yfirráð yfir íslenskum auðlindum verði uppfyllt og þau vernduð. Okkur er sagt að svo verði en svo kemur í ljós að hæstv. utanríkisráðherra vill ekki staðfesta það þegar gengið er á hana að hún muni ekki semja nema það fáist varanlegar undanþágur frá evrópsku sjávarútvegsstefnunni. Hún er ekki tilbúin að segja að hún falli frá þessum viðræðum ef undanþágurnar eru ekki varanlegar. Við vitum að það eru engar varanlegar undanþágur sem hafa verið veittar frá sjávarútvegsstefnunni núna og af hverju ættu 27 ríki, sem öll verða að samþykkja að við fáum varanlega undanþágu, að gera það þegar þau sjálf fengu enga varanlega undanþágu, hvorki frá sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum eða öðru? Til að mynda fékk Króatía, síðasta landið sem fór inn í Evrópusambandið, engar varanlegar undanþágur. Engar. Aðildarviðræðurnar tóku átta ár. Króatía fékk fullt af undanþágum eins og ríkisstjórn Íslands myndi sennilega kalla það, þ.e. undanþágur til þess að geta aðlagast yfir ákveðinn tíma. Engar varanlegar undanþágur. Samningaviðræðurnar snerust eingöngu um það hvernig og á hve löngum tíma Króatía ætlaði að aðlagast Evrópusambandinu og átta ár tók þetta. Hæstv. utanríkisráðherra hefur sagt við okkur hér í þinginu að hún sjái fyrir sér að við getum verið komin inn í Evrópusambandið innan tveggja ára. Það væri náttúrlega einhvers konar met ef það næðist. En það undarlega er að það er sama við hvern maður ræðir innan Evrópusambandsins, við Feneyjanefndina eða hvern sem er; fólk rekur upp stór augu þegar það heyrir að það hafi verið sagt á Íslandi að við ætlum að vera komin inn í Evrópusambandið og allt verði klappað og klárt innan tveggja ára og þegar það er upplýst um það að jafnframt sé Ísland að fara inn í þessar samningaviðræður þannig að við lítum á þetta sem einhvers konar matseðil, við lítum á þetta sem einhvern pakka sem við ætlum að velja úr. Þá verður auðvitað fátt um svör vegna þess að Evrópusambandið virkar ekki þannig. Þetta er eitthvað sem við þurfum að ræða og þarf að liggja fyrir hér áður en við ljúkum þessari umræðu.
Mig langar að benda líka á að við erum með EES-samninginn. Hann veitir okkur aðgang að innri markaði Evrópu. Við höfum yfirráð yfir okkar auðlindum, við erum utan tollabandalagsins, við erum með eigin gjaldmiðil og peningastefnu. Við getum gert alla þá fríverslunarsamninga sem við viljum. Við erum ekki með þessar yfirþjóðlegu skuldbindingar, mjög takmarkað. Við erum ekki að ganga á frelsi komandi kynslóða. Við erum með sveigjanleika og við erum með aðgang að alls konar samstarfi við Evrópusambandið. Af hverju ættum við á Íslandi að vilja ganga inn í Evrópusambandið? Flestallt sem ég heyri, flestar ástæður eru nú þegar til staðar. Samningar sem við getum náð og sá aðgangur sem við höfum að innri markaðnum. Þetta er eitthvað sem við höfum í dag án þess að skerða fullveldi okkar. Ef við myndum hins vegar ákveða að ganga í Evrópusambandið þá myndum við þurfa að bæta við okkur verulega miklu og flóknu íþyngjandi regluverki. Nú þegar erum við að fá ansi mikið af reglugerðum frá Evrópusambandinu en við höfum talið hagsmunum okkar betur borgið með EES-samningnum. En af hverju að fara alla leið þegar við vitum að Evrópusambandið er að dragast aftur úr mjög hratt?
Frú forseti. Ég ætlaði að koma hér inn á hælisleitendastefnu og -pakka Evrópusambandsins en þar sem ég á tvær sekúndur eftir óska ég eftir að vera sett aftur á mælendaskrá svo ég nái að fara yfir það í næstu ræðu.