157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:51]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér í fyrri ræðu minni var ég að ræða neitunarvald einstakra ríkja innan Evrópusambandsins. Það er þannig að Evrópusambandið byggist á, a.m.k. stór hluti eða kjarni Evrópusambandslöggjafarinnar og í raun byggist þetta samningssamband aðildarríkja Evrópusambandsins á því að öll aðildarríkin, hvert og eitt aðildarríki sé jafn rétthátt. Þar af leiðandi hefur hvert ríki neitunarvald þegar kemur að stórum málum, grundvallarmálum, svo sem breytingum á stofnsáttmálum Evrópusambandsins, breytingum á aðildarsamningum sem hafa fengið stöðu þessara stofnsáttmála, svona stjórnarskrárígildi. Þetta hefur verið alfa og ómega Evrópusambandsins, þ.e. þessi einsleitni, ekki bara þegar kemur að löggjöf heldur líka að þessu mikla jafnræði á meðal aðildarríkjanna. Það hefði verið erfitt að byggja upp svona fjölmennt ríkjabandalag eins og Evrópusambandið er orðið ef sum ríki ættu að vera rétthærri en önnur. Það var því aldrei hugmyndin heldur er áherslan lögð á það að ríki geti stöðvað tiltekin mál. Á það hefur reynt stundum í erfiðum málum þar sem sum ríki hafa beitt neitunarvaldi sínu. Nýlegasta dæmið er kannski Ungverjaland sem beitti neitunarvaldi sínu þegar kom að ákvörðunum um stórfelld fjárframlög til Úkraínu.

Undanfarin misseri hefur Evrópusambandið látið verulegar fjárhæðir af hendi rakna með ýmsum hætti til Úkraínu, alls kyns samningum, en nú stóð til sem sagt að veita verulegu fé til Úkraínu í því formi sem Ungverjaland var ekki sátt við og beitti neitunarvaldi sínu þar af því tilefni. Þó hygg ég að það hafi ekki verið eingöngu vegna þessarar tilteknu ákvörðunar Ungverjalands heldur hafi þetta verið svolítið í deiglunni í Evrópusambandsríkjunum meðal leiðtoga Evrópusambandsins. Að minnsta kosti af þessu tilefni hefur því núna verið fleygt af framkvæmdastjóra Evrópusambandsins m.a. og þessum fræga Draghi sem hefur verið gagnrýninn á þróun Evrópusambandsins undanfarið og hvatt menn til að gyrða sig í brók í Evrópusambandinu til þess að Evrópusambandið dragist ekki aftur úr í samkeppni ríkjanna á alþjóðavettvangi. Bæði hefur Draghi og framkvæmdastjóri Evrópusambandsins fjallað um það í ræðum að það sé kominn tími til þess að Evrópusambandið og löndin fallist á það að taka upp þetta fyrirkomulag, þessa kröfu um að samþykki allra ríkja þurfi fyrir öllum ákvörðunum. Menn nota auðvitað stríðið og stríðsreksturinn og það er svona ástand eins og menn nota nú gjarnan í stjórnmálum þessi síðustu misseri, að vísa til ógnar í hinu geópólitíska samhengi eins og það er kallað, þ.e. svona umróts á alþjóðavettvangi, þá hafa menn vísað til þessa og þannig ætlað að renna stoðum undir þær hugmyndir sem núna eru uppi um það að Evrópusambandið breyti stjórnskipulagi sínu þannig að það þurfi ekki lengur samþykki allra til stórfelldra ákvarðana. Þetta yrði, ef þetta næði fram að ganga, grundvallarbreyting á Evrópusambandinu.

Það kemur mér á óvart að finna því ekki stað í gögnum málsins um þessa þingsályktunartillögu að hv. utanríkismálanefnd hafi ekkert rætt þetta, hafi ekki rætt þróunina sem er að verða á Evrópusambandinu sjálfu í þessu samhengi vegna þess að það er mikilvægt að þjóðin átti sig á því fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér er lögð til, í hvaða átt Evrópusambandið er að fara og hvaða möguleika Ísland myndi hafa (Forseti hringir.) eftir slíka þróun, lítið land sem Ísland er í því samhengi. — En ég þarf að koma með fleiri punkta og bið virðulegan forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.