157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:56]
Horfa

Snorri Másson (M):

Forseti. Ég ræddi í síðustu ræðu minni um þær sviðsmyndir, þannig að ég noti það orð, sem blöstu við Íslendingum ef svarið yrði já í atkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Annars vegar yrði fram undan langt dauðastríð aðildarumsóknar í höndum ósamstiga ríkisstjórnar eða hins vegar að farið yrði á fullri ferð inn í Evrópusambandið eftir að þjóðin hefði afhent hæstv. utanríkisráðherra tiltölulega rúmt og óskilyrt umboð til að hátta þeim aðildarviðræðum eins og henni sýndist best.

Ef við drögum þennan þráð lengra og sjáum fyrir okkur að það komi til þess að samningur verði lagður fyrir þjóðina sem síðan verði samþykktur, þjóðin, eftir að hafa verið leidd inn á þessa braut, endi á að greiða slíkum samningi atkvæði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu — þótt maður telji það harla ólíklegt á þessu stigi þá er það auðvitað skylda okkar hérna á frumstigum þessa máls að sjá það til enda — þá getum við séð fyrir okkur að menn verði orðnir aðilar að Evrópusambandinu. Og hvers konar Evrópusamband er það sem við erum að ræða um? Hvers konar ríkjasambandi eða hugsanlega verðandi sambandsríki erum við þá orðin hluti af, 28. ríkið?

Evrópusambandið hefur verið í viðvarandi krísu á undanförnum árum og þar hefur sambandið dregist aftur úr í samkeppnishæfni við ýmis önnur svæði sem við berum okkur gjarnan saman við. Hver og einn hefur sínar skýringar á því hvað orsakar þennan djúpstæða vanda Evrópusambandsins. Meðal skýringa af hálfu forsvarsmanna og forystumanna innan Evrópusambandsins er að Evrópusambandið sé ekki nægilega samstiga í ákvörðunum og það geti tafist mjög að taka áríðandi ákvarðanir vegna þessa hvimleiða neitunarvalds einstakra ríkja. Ef ekki er hægt að fara fram hjá því þá sé ekki hægt að bregðast nægilega hratt við í nútímanum til að skara fram úr og tryggja samkeppnishæfni. Það er á þessum hugmyndafræðilega og pólitíska grundvelli sem umræðan um að Evrópusambandið eigi að verða sambandsríki sækir í sig veðrið. Röksemdin er einhvern veginn þannig hljóðandi að til þess að við getum verið nægilega snör í snúningum til að bregðast við nútímanum þá verðum við að geta brugðist hratt við og hegðað okkur sem ein heild á öllum sviðum. Til þess þurfum við að verða sambandsríki. Þannig að þegar menn benda á það í þessari umræðu að það séu alvarlegar tilhneigingar af hálfu málsmetandi aðila innan Evrópusambandsins í þá átt að verða sambandsríki þá er það alls ekki úr lausu lofti gripið. Það er byggt á yfirlýsingum þeirra.

Hægt er að vísa til Mario Draghi um þau efni sem samdi fræga skýrslu á sínum tíma og hefur verið frammámaður í Evrópusambandinu um áratuga skeið. Hann lýsir þessu þannig að eina leiðin fram á við fyrir Evrópusambandið sé að verða meira samstiga á fleiri sviðum, með öðrum orðum að verða að sambandsríki. Um slíka umræðu hefur verið fjallað í íslenskum miðlum frekar skýrt. Annar aðili sem talar með þessum hætti er maður að nafni Guy Verhofstadt, sömuleiðis stjórnspekingur og mikils metinn í röðum hörðustu Evrópusinna og sambandsríkissinna innan Evrópusambandsins. Hann talar einnig um að það sé nauðsynlegt skref fram á við að auka mjög samþættingu og flýta samrunaþróuninni innan Evrópusambandsins til að tryggja samkeppnishæfni til lengri tíma. Það felur í eðli sínu í sér að dregið sé úr ákvörðunarvaldi og vægi sérhvers sjálfstæðs þjóðríkis og miðstýringarvaldið aukið. Það sé aukið og þar með tekin skref, hænuskref, stór skref í einhverjum tilvikum, í átt að sambandsríki.

Þegar hv. þingmenn t.d. Viðreisnar, eina flokksins sem er með það á stefnuskrá sinni að fara inn í Evrópusambandið, bregðast við áhyggjum manns af sambandsríkishugmyndinni, að við séum að fara inn í sambandsríki eftir alla þessa baráttu fyrir fullveldi og sjálfstæði landsins, þá vilja þeir gera lítið úr slíkum áhyggjum og láta eins og þetta komi bara ekkert til umræðu, (Forseti hringir.) það sé enginn að tala um að þetta sé að verða eitt sambandsríki. Þá má nefna að höfundur sjálfrar hugmyndarinnar um evrópskt sambandsríki var sérstakur heiðursgestur á landsþinginu. (Forseti hringir.) Menn verða því að gera sér grein fyrir þessu, nákvæmlega þessu, áður en gengið er til þessarar atkvæðagreiðslu, hver endanleg niðurstaða verður að öllum líkindum þátttaka í ferli sem líkist sífellt meira verðandi sambandsríki Evrópu.