157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:02]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég fjallaði í stuttu erindi áðan um umboð, hvert væri umboð stjórnvalda til að hefja þessa vegferð. Þetta meinta umboð hefur svo sem verið rætt talsvert og hvað niðurstöður síðustu kosninga gáfu til kynna varðandi vilja þjóðarinnar. Ég hafði til hliðsjónar umsögn sem barst frá Frosta Sigurjónssyni og vitnaði aðeins í hana áðan og til þess að halda samfellu í þeim málflutningi þá þarf ég, með leyfi frú forseta, að taka það aðeins lengra. Ég ætla ekki að fara orðrétt með það en Frosti hnykkir á því í umsögn sinni að alþingismenn séu eingöngu bundnir af sannfæringu sinni og ber kannski að skoða eftirfarandi texta í því ljósi. Þar segir, með leyfi frú forseta:

„Þingmenn hafa svarið eið að stjórnarskránni og munu því að fylgja sinni sannfæringu hver sem niðurstaða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu er. Þingmenn sem eru andvígir aðild, og kjörnir sem slíkir, munu áfram færa fram röksemdir gegn aðild og leggjast gegn því að regluverk Íslands verði aðlagað að kröfum ESB.

Það ber því vott um mikið óraunsæi að leggja út í aðildarviðræður við ESB þegar meiri hluti þings er beinlínis mótfallinn aðild.“ — Ég endurtek, frú forseti, beinlínis mótfallinn aðild. — Næsta víst er að slíkar aðildarviðræður muni daga uppi líkt og gerðist árið 2013.

Tækist þrátt fyrir allt að ljúka viðræðum með aðildarsamningi, væru samt miklar líkur á að honum yrði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kæmist málið lengra, yrði að gera breytingar á stjórnarskrá sem væri ólíklegt að gengi eftir, enda þyrftu tvö þing að samþykkja þær.

Innihéldi samningur veigamiklar og varanlegar undanþágur Íslands frá regluverki ESB, gæti samt farið svo að honum yrði hafnað af einhverju aðildarríkja ESB.“

Hér er Frosti Sigurjónsson í raun og veru að tala um varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins. Undanþágu frá honum hefur engin þjóð fengið, a.m.k. síðan núverandi mynd ESB varð til. Það má finna varanlegar undanþágur, en ég man ekki einu sinni ártalið, frú forseti, það er svo langt síðan. Í árdaga þess að Evrópusambandið er að verða til voru einhverjir sumarbústaðir í Danmörku undanþegnir og eitthvað slíkt, en núverandi Evrópusamband hefur aldrei veitt varanlega undanþágu frá stofnsáttmála sínum.

Síðan heldur Frosti áfram, með leyfi frú forseta: „Þegar málið er skoðað virðist það geta skilað engu öðru en að kljúfa þjóðina …“ Þetta er einmitt orðalagið, frú forseti, sem hæstv. forsætisráðherra notaði ítrekað þegar hún lýsti því hvað mætti alls ekki gerast, sem væri að þetta umræðuefni, þetta risastóra mál, stærsta mál fullveldistímans, mætti alls ekki kljúfa þjóðina. Engu að síður er þetta mál nú orðið það málefni sem ríkisstjórnin leggur mesta áherslu á og umfram þau brýnu mál sem í raun og veru var lofað í kosningabaráttunni að yrði að takast á við fyrst. Það voru efnahagsmálin. Þar var ekki bara forsætisráðherra þjóðarinnar sem var afdráttarlaus með það heldur að sama skapi hæstv. utanríkisráðherra.

Síðan má setja þetta í samhengi við, og ég kannski kem að því í næstu ræðu, fleiri risastór og umdeild mál. Hér var rætt á sínum tíma hvernig Ísland ætti að takast á við það ef tækni- og fjárfestingargeta yrði til staðar og vilji til að leggja sæstreng til þjóðarinnar. Við núverandi aðstæður er enn þá hægt að taka þann slag. Þó að orkupakki þrjú hafi vissulega flækt þá stöðu þá er fullveldið engu að síður óskert enn þá. Ef við hins vegar værum gengin inn í Evrópusambandið þá er búið að taka það verkfæri af okkur, frú forseti. Það er ekkert lítið verkfæri.

Ég mun kannski víkja betur að þessu hér á eftir en einnig því sem kemur fram í umsögn Frosta þar sem hann fer aðeins yfir hvernig hefur verið sýnt fram á það í mælingum að fáir vilji ganga inn í Evrópusambandið eins og það er núna. Ég mun fara aðeins betur yfir það á eftir, frú forseti, og óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.