157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:08]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Um hvað mun þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst næstkomandi snúast í raun og veru? Ég held að þessi atkvæðagreiðsla muni mestmegnis snúast um það hvort við treystum hæstv. ríkisstjórn fyrir samningsumboði þjóðarinnar þegar hún ræðir við kommissarana í Brussel. Þetta snýst í raun um það hvort við treystum hæstv. utanríkisráðherra til að semja fyrir okkur við kommissarana í Brussel.

Hvað hefur komið í ljós að undanförnu hvað varðar traust til þeirra sem hafa haldið á þessu máli hingað til? Í fyrsta lagi, frú forseti, gátu þau ekki einu sinni útbúið spurningu sem var í lagi, sem átti að leggja fyrir þjóðina. Þau gátu ekki útbúið spurninguna og voru gerð afturreka með þá spurningu sem hæstv. utanríkisráðherra fyrst bar hér upp. Nú er búið að breyta þeirri spurningu og við þekkjum hvernig hæstv. utanríkisráðherra hefur haldið á okkar málum í þeim málum, frú forseti, sem við höfum fengið upplýsingar um. Við höfum reyndar ekki fengið neinar upplýsingar um það hvað hæstv. ráðherra hefur farið í milli úti í Brussel í þeim ótal ferðum sem hæstv. ráðherra hefur farið þangað til viðræðna við ráðamenn þar. Við höfum ekki fengið upplýsingar um það. Það er sveipað leyndarhjúpi og þau treysta ekki þjóðinni fyrir upplýsingum til að sjá það hvað þar hefur farið fram. Síðan hefur allt þetta mál einkennst af ótrúlegum blekkingum, frú forseti, ótrúlegum blekkingum, ekki bara fyrir kosningar þar sem hæstv. forsætisráðherra sagði að það yrði ekki farið í þessa vegferð nema það væri almenn samstaða hér á landi um að ganga í Evrópusambandið. Svo kom allt annað á daginn eftir kosningar. Í stjórnarsáttmálanum var talað um að atkvæðagreiðslan yrði haldin 2027. Það var ekki einu sinni staðið við það. Það á að halda þessa atkvæðagreiðslu ári fyrr. Það er því ekkert að marka það sem þessi ríkisstjórn hefur verið að segja í þessu máli hingað til og hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra hafa verið ófáanleg til að upplýsa þjóðina um það með hvaða markmið verður farið í þessar viðræður, þ.e. verður staðið á því að við gefum ekki eftir fiskveiðiauðlindina okkar? Verður staðið á því? Hvernig er með landbúnaðinn? Hvernig er með orkuauðlindirnar? Það má alls ekki nefna það að þar verði sett einhver rauð strik í sandinn hvað varðar samningsmarkmið úti í Brussel.

Ég held því, frú forseti, að þessi atkvæðagreiðsla muni að mestu snúast um traust, hvort þjóðin leggi þetta samningsumboð í hendur hæstv. utanríkisráðherra til að fara með umboð þjóðarinnar úti í Brussel. Það er ósköp einfalt. Ég held að þetta muni snúast um það og ekkert annað. Við munum eftir því, frú forseti, þegar hæstv. utanríkisráðherra kom til Íslands algjörlega fyrirvaralaust með samning um hlutdeild okkar í makrílkvótanum síðastliðinn vetur þar sem hlutdeild Íslands var skert verulega og hæstv. utanríkisráðherra taldi þetta vera góðan samning. Gjörið svo vel, skert hlutdeild í makrílkvótanum, (Forseti hringir.) gjörið svo vel.