157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:13]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Hér stöndum við þingmenn Miðflokksins einir og erum að leitast við að fá afhent leynigögn úr leyniherbergi hér í þinginu sem eingöngu utanríkismálanefndarmenn hafa fengið aðgang að, gegn því að þeir segi ekki neinum frá hvað þar er að sjá og fjalli ekki um það sem fyrir augu ber í þessu leyniherbergi um aldur og ævi. Það er náttúrlega fullkomlega óásættanlegt þannig að við förum fram á það að trúnaði verði létt af þessum gögnum þannig að bæði þing og þjóð fái að kynna sér hvað þarna er á ferð vegna þess að við teljum að það sé mikilvægt að fá upp á borð hvers lags leynigögn sem þarna eru á ferð. Við teljum að þetta eigi rétt á sér og þjóðin eigi rétt á þessum upplýsingum. Við höfum einnig bent á það hér í okkar ræðum að það eru engin samningsmarkmið sem fylgja þessari blessuðu þingsályktunartillögu sem við erum að ræða hér og ekki er þau að finna heldur í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Ekki er heldur að finna í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar rauðar línur. Það er bara ekkert að finna þar annað en endurtekningar frá Jóhönnustjórninni hinni fyrri og jafnvel dregið úr. Þar voru þó einhver samningsmarkmið og jafnvel einhverjar rauðar línur. Núna er bara ekkert, opin bók, enda vill Viðreisn ganga í Evrópusambandið alveg sama hvað. Það bara liggur fyrir.

Það vakti athygli mína, frú forseti, grein sem fyrrverandi ráðherra, Björn Bjarnason, birti á heimasíðu sinni í dag. Mig langar að vitna til hennar, ég veit ekki hvort ég næ að vitna í alla greinina í þessari ræðu en þá verð ég bara að fá að fara aftur á mælendaskrá ef ég næ því ekki. En hann segir hér, með leyfi forseta:

„Í dag, 27. maí, birtast viðtöl við Kristrúnu Frostadóttur í The New York Times og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í breska blaðinu The Guardian. Þær reyna báðar að setja ákvörðun ríkisstjórnarinnar í eitthvert alþjóðlegt samhengi og nota ummæli Donalds Trumps um Grænland sem meginástæðuna fyrir því að þær standi nú allt í einu í þeim sporum að þurfa að tryggja öryggi og framtíð Íslands með aðild að ESB.

Allir sem þekkja eitthvað til íslenskra stjórnmála vita að þetta er lygi.“ — Þetta eru ekki mín orð, þetta eru orð fyrrverandi ráðherra, Björns Bjarnasonar. — „Trump er alls ekki ástæðan fyrir því að þetta var sett í stjórnarsáttmálann heldur krafa Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.“

Ég tel að þetta sé fullkomlega rétt. Ég held áfram, með leyfi forseta:

„Það er furðulegt að í viðtalinu við The Guardian sakar Þorgerður Katrín hópa innan lands og utan um hræðsluáróður og segir Ísland verða fyrir barðinu á rangfærslum og orðræðu sem væri tekin „úr handbók Nigel Farage og Reform“. Um hvað er ráðherrann að tala? Þá segir utanríkisráðherra hættu á að þjóðaratkvæðagreiðslan verði „skotmark Rússa“ og „aðila sem leitast við að hafa neikvæð áhrif á opinbera umræðu okkar“. Erlend afskipti og dreifing rangfærslna gætu haft áhrif á niðurstöðuna.

Eini erlendi aðilinn sem boðað hefur og boðið stjórnvöldum aðstoð er stækkunardeild ESB og þingnefnd ESB-þingsins með stuðningi þingmanna þar. Utanríkisráðherra hefur hvergi amast við slíkum afskiptum enda á systurflokkur ráðherrans á ESB-þinginu hlut að máli.“

Hér er mitt innskot: Finnst þingmönnum það eðlilegt að eini erlendi aðilinn — það sé bara leyfilegt að ESB boði hér áhrif á og afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslunni? En ég ætla að halda áfram, með leyfi forseta:

„Blaðamaður The Guardian segir: „Ákvörðunin [um þjóðaratkvæðagreiðsluna] var að hluta til knúin áfram af hótunum frá Bandaríkjunum, sem lengi hafa verið náinn bandamaður Íslands, um að yfirtaka með valdi nánasta nágranna sinn, Grænland. (Forseti hringir.) Blaðamaður The New York Times sem hitti Kristrúnu Frostadóttur segir …“

Afsakið, forseti. Ég verð að fá að halda áfram í næstu ræðu og bið um að vera sett aftur á mælendaskrá.