157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:19]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég ætla að fá að ræða hér hælisleitendastefnu eða hælisleitendapakka Evrópusambandsins. Við þurfum að vita hvað við erum að fara inn í ef við segjum já í haust. Ísland tekur að hluta til þátt í hælisleitendakerfum í gegnum Schengen, Dyflinnarreglugerðina og fleira en ekkert í líkingu við það sem við myndum gera ef við værum komin inn í Evrópusambandið. Nú þegar þurfum við að vinda ofan af því ástandi sem er orðið í hælisleitendamálum á Íslandi, ekki auka á vandann. Helstu lykilatriði sameiginlegrar hælis- og innflytjendastefnu snúast um að aðildarríkin hafi sameiginlegar reglur um hvernig er tekið á móti hælisleitendum, hvernig umsóknir eru afgreiddar og hvaða ríki beri ábyrgð á hverju máli. Helstu punktarnir eru í fyrsta lagi sameiginleg lágmarksréttindi hælisleitenda. Þetta er svolítið stóri punkturinn, réttindi hælisleitenda. En skyldurnar? Eru þær engar? Er bara allt í lagi að einstaklingar frá ákveðnum svæðum og löndum sem meira að segja helstu nágrannalönd þeirra taki ekki á móti, að við tökum á móti þeim þrátt fyrir að það liggi fyrir að til að mynda aðilar frá ákveðnum löndum séu tíu sinnum líklegri til að nauðga, átta sinnum líklegri til að fremja aðra glæpi og lengi mætti telja um tölulegar staðreyndir sem við þurfum að skoða með gagnrýnum augum áður en við tökum á móti hverjum sem er. Við viljum stýra því hverjir koma hingað, ekki að eitthvað yfirþjóðlegt vald hafi enn meira vald til að ákveða hverjum við tökum á móti.

Ég mun fara yfir þessa tölfræði hér í síðari ræðum en ESB setur sameiginlegar reglur, til að mynda um húsnæði og framfærslu sem við skattgreiðendur ættum að veita, heilbrigðisþjónustu sem við skattgreiðendur eigum að veita, réttindi fólks sem kæmi, málsmeðferð umsókna, rétt til lögfræðiaðstoðar og fleira. Er þetta raunverulega það sem við viljum að aðrir taki ákvörðun um fyrir okkur? Höfum við ekki séð að við erum í nógu miklum vandræðum með málaflokkinn nú þegar og þurfum að taka á honum sjálf? Markmiðið er að sambærileg réttindi gildi milli ríkja, aftur bara réttindi engar skyldur. Sameiginleg skilgreining á flóttamanni og vernd, að aðildarríkin noti sömu grunnviðmið, til að mynda hvað telst flóttamaður, hver fær viðbótarvernd, hverjum við á Íslandi munum veita viðbótarvernd og aftur hvaða réttindi fylgja verndinni. Í öllu sem Evrópusambandinu tekst að regluvæða þá tala þau bara samt um réttindi, ekki skyldur.

Við þekkjum margt í því sem Evrópusambandið stendur fyrir núna, eins og Dyflinnar-reglugerðina sem við mættum nýta betur. En auðvitað hefur Evrópusambandið sagt að þetta sé umdeildasta atriðið, að fyrsta ESB-ríki sem hælisleitandi kemur til beri ábyrgð á umsókninni. Þetta hefur valdið miklu álagi á landamæraríki eins og Grikkland, Ítalíu og Spán. Hverju vill hælisleitendapakki Evrópusambandsins ná fram? Jú, dreifa álaginu þannig að þessi lönd þurfi ekki að taka á móti eins mörgum og að aðrir þurfi að taka á móti fleirum, þ.e. það á ekki að taka á vandamálinu, það á bara að dreifa vandamálinu um alla Evrópu. Núna hafa lönd sagt: Nei, við ætlum ekki að taka þátt í þessu. Lönd innan Evrópusambandsins hafa sagt: Nei, við ætlum ekki að taka þátt í hælisleitendapakka Evrópusambandsins. Hver er staðan fyrir þau lönd? Þau eru að fá himinháar sektir frá Evrópusambandinu fyrir að neita að taka þátt í hælisleitendapakka Evrópusambandsins. Þetta er eitt af því sem við þyrftum að undirgangast ef við yrðum aðilar að Evrópusambandinu. Ekki hef ég heyrt neitt talað um að það eigi að sækja um undanþágur frá þessu enda er ekki varanlegar undanþágur að finna og fá innan Evrópusambandsins. — Ég óska eftir að vera sett aftur á mælendaskrá.