þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég var að ræða þróun Evrópusambandsins í síðustu ræðu og ætla að halda svolítið áfram með það. Ég hef annars vegar vakið athygli á nýlegum fréttum frá Evrópusambandinu, ummælum leiðtoga Evrópusambandsins og stórra aðildarríkja, þar sem fram kemur áhugi þeirra á því að taka inn ný ríki en að næstu ríki sem verði tekin inn í sambandið fái ekki hið hefðbundna neitunarvald sem Evrópusambandið byggir sína tilvist á. Evrópusambandið byggir sína tilvist á því að öll ríkin séu jafn rétthá, hvert og eitt ríki hafi neitunarvald þegar kemur að stórum ákvörðunum. Þetta hefur bara nýverið skeð, þetta eru nýjar fréttir um þessar hugmyndir sem beinast bara á þessu stigi málsins að nýjum aðildarríkjum. Þetta er gert til þess að búa í haginn fyrir þessi umsóknarríki sem bíða núna í röðum; þau eru níu eða tíu, allt fátæk ríki, allt gömul austantjaldsríki sem sækja þetta stíft.
Maður skilur það og ég hef alveg samúð með þeirra sjónarmiði og að þeirra hagsmunir liggi mögulega í dag í ríkjabandalagi eins og Evrópusambandinu, ríki sem búa við stöðuga ógn frá Rússum, stöðuga ógn af stríðsrekstri Rússa og jafnvel einhverra fleiri ríkja í nágrenninu. Ég hef alveg fulla samúð með sjónarmiðum þessara ríkja sem búa líka langflest við þó nokkuð lakari lífskjör en við t.d. myndum sætta okkur við hér á landi og ég myndi segja líka flest ríki í vesturhluta Evrópu og Evrópusambandsríki almennt. Ég hef samúð með því að þau sækja það mjög stíft að komast inn í Evrópusambandið. Ríkjunum í vesturhluta Evrópu að sjálfsögðu hugnast ekki að flýta inngöngu þessara ríkja vegna þess að þau vita hvaða áhrif það hefur á önnur ríki. Þau vita að það mun hafa í för með sér aukna byrði á innviði Evrópusambandsríkjanna, innviði eins og heilbrigðiskerfi, félagsþjónustu og allt þetta annað sem aðildarríki eiga að geta gengið í, þvert yfir landamæri, miklu frekar og í miklu ríkari mæli en við þekkjum í dag með EES-samningnum. En til að selja þessum stóru ríkjum þá hugmynd að þessi ríki komist inn í Evrópusambandið, því einhverra hluta vegna vill framkvæmdastjórnin, þeir sem fara fyrir Evrópusambandinu, liðka fyrir inngöngu þessara ríkja inn í bandalagið, til þess að svo megi verða þarf einhvern veginn að friða stóru ríkin. Hugmyndin er þá að gera það með því að neita þessum ríkjum um neitunarvald. Þau fái vissulega sæti við borðið, þau megi segja alls konar við borðið og jafnvel greiða atkvæði um hitt og þetta, þau megi bara ekki segja nei. Þau megi ekki segja nei þegar kemur að mikilvægum ákvörðunum. Þessu verður íslenska þjóðin að átta sig á að kunni að eiga við um Ísland í þessu sambandi og sérstaklega þegar kemur að stýringu náttúruauðlinda hér og forræði yfir náttúruauðlindum. Þetta er eitt.
Hinn anginn af þessu neitunarvaldi er þessi almenna umræða sem hefur verið í Evrópusambandinu um nokkurt skeið um að svo þurfi Evrópusambandið að breyta um eðli og fella niður þetta neitunarvald allra ríkja og aðildarríkin verði bara að sætta sig við það að stóru ríkin og stöndugu, sem leggja vissulega mest fé til Evrópusambandsins, verði að fá að hafa sjálfdæmi um þær stóru ákvarðanir sem eru teknar á vettvangi framkvæmdastjórnar og ráðherraráðsins — við borðið eins og það er gjarnan kallað hér — það verði í höndum stóru ríkjanna að fjalla um það.
Því miður hefur ekkert verið fjallað um þennan mikilvæga þátt á Alþingi. Það kann að vera og ég óska eftir því og ætlast til þess að umræða um þetta verði að einhverju leyti í sumar hér utan þinghússins. En það er alveg afleitt að þingheimur hafi ekki látið sig þessa þróun Evrópusambandsins varða í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu (Forseti hringir.) og við umfjöllun þessa máls hér í þinginu. Það er ekki sómi að því að þessu máli sé þjösnað hér í gegn án þess að þessi þróun sé rædd og (Forseti hringir.) ég óska eftir því við virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá til að ræða fleiri anga af þessum toga.