þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þegar við ræðum um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu þessa dagana þá stöndum við, eins og ég skil málið, í ákveðinni baráttu fyrir áframhaldandi fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar í stað þess að steypa því kerfi sem við höfum haft, pólitíska kerfi, inn í ríkjasamband með yfirþjóðlegar valdheimildir og talsverðri takmörkun á valdi Alþingis. Þetta er grunnmyndin sem kemur upp í hugann. Ef maður horfir til orðræðu þess fulltrúa sem verður falið að semja um aðild við Evrópusambandið, þ.e. hæstv. utanríkisráðherra, formanns Viðreisnar, ef maður horfir til orðræðu hennar — því ég tek aftur fram að komi til þess að já verði svarið í þjóðaratkvæðagreiðslu verður hæstv. utanríkisráðherra sá einstaklingur sem mætti skilja þannig að hafi tiltölulega óskorað umboð til að semja eins og henni þykir best við Evrópusambandið um aðild okkar Íslendinga. Ef maður horfir til orðræðu hennar vakna ákveðnar áhyggjur hjá manni af því hvernig staða Íslands á veraldarsviðinu mun breytast þegar þetta aðildarferli er skollið á.
Í gegnum tíðina hefur sjálfstæðisbarátta Íslendinga auðvitað verið í augum umheimsins á köflum allt að því hlægileg þótt auðvitað virði menn það við okkur að vilja vera, svo fá sem við erum, sjálfstæð og fullvalda þjóð. Það vildum við þegar við vorum 70.000–80.000: Það þykir náttúrlega, að mínu mati, enn virðingarverðara en að vilja það þegar við erum 300.000–400.000. En þessi barátta okkar, þessi viðleitni okkar í gegnum tíðina, þessarar vopnlausu smáþjóðar sem notar ekkert nema orðsins mátt til að tryggja sjálfstæði sitt, hefur auðvitað verið í augum umheimsins ekkert stórmál sem skekur heimsbyggðina. Það eru önnur mál sem fanga athygli almennings og fjölmiðla víða um heim en fullveldis- og sjálfstæðisbarátta Íslendinga. Við höfum að því marki auðvitað getað sett okkar kröfur fram gagnvart okkar mótaðilum í tilverunni en að öðru leyti hefur þetta ekki verið að færa fjöll í stóru umræðunni. Þetta er raunveruleiki íslensku umræðunnar um fullveldi.
Það sem hæstv. utanríkisráðherra gerir, þessi tónn sem sleginn er í viðtali við einn stærsta fjölmiðil Bretlands, sem slegið er þar upp á forsíðunni á vefmiðlinum í dag, um að þessi útbreidda andstaða íslensks almennings við Evrópusambandsaðild, sem er nú rótgróin andstaða og hefur lengi mælst, er að setja þetta í samhengi við einhvers konar vafasöm afskipti erlendra ríkja. Talað er um Rússa, íhlutun þeirra, upplýsingaóreiðuherferðir af hálfu þeirra. Talað er um breska stjórnmálaflokka, Reform UK, talað er um einhvers konar gervigreindartengd afskipti. Reyndar eru einu gervigreindartengdu tilraunirnar sem maður hefur séð hérna á Íslandi enn um sinn af hálfu Evrópusinna. En hvað um það. Það er talað um marga þætti sem hafa verið til umræðu í sambandi við meinta íhlutun alls konar aðila, hvort sem það eru aðilar Evrópusambandsins eða Rússlands eða Bandaríkjanna eða hvaða ríkja sem er. Þetta eru þættir sem hafa sannarlega verið til umræðu sem hæstv. utanríkisráðherra nefnir þarna. Þeir hafa verið til umræðu í stórum og mikilvægum kosningum víða um Evrópu, hvort sem maður nefnir þessi Austur-Evrópulönd, hvort sem maður nefnir Rúmeníu, Moldóvu, Tékkland, auðvitað Ungverjaland, það er gömul umræða, eða Georgíu, sem er nú ekki í ESB en er hluti af þessari umræðu. Þetta er umræða sem fer fram og til baka um það hver sé að skipta sér af hverju. Það sem hæstv. utanríkisráðherra gerir með því að draga Ísland inn í þessa umræðu er að setja Ísland í eitthvert samhengi sem Ísland á ekkert heima í, er að færa Ísland með þessu, fulltrúi okkar á alþjóðasviðinu, inn í einhverja umræðu og inn í eitthvert geópólitískt samhengi sem er bara einfaldlega mjög takmarkað tilefni fyrir Ísland til að vera að blanda sér inn í. Það er enginn að ræða um neinar haldbærar sannanir fyrir svona afskiptum hér þannig að þessi umræða hljómar mjög ankannalega. Hún er að einhverju leyti innflutt frá ráðandi öflum í Evrópusambandinu. Þeim eru þessi atriði mjög hugleikin en þetta á ekki beint erindi við íslensku umræðuna eða passar einhvern veginn illa hér. Þetta er tilfinningin sem maður hefur, og maður neyðist kannski til þess að halda áfram með þetta í síðari ræðu, fyrir því sem koma skal í því hvernig stöðu Íslands verður breytt með þessari aðildarumræðu.