157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:36]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég lauk ræðu minni áðan þar sem ég var að fjalla um umboðið og hyggst láta staðar numið þar í bili í það minnsta. En af hverju skiptir þessi umræða svona miklu máli? Af hverju er Miðflokkurinn einn flokka núna að ræða þetta mál? Það er reyndar alveg ótrúlegt. Og hvernig stendur á því? Íslendingar börðust jú hart fyrir fullveldi sínu og sjálfstæði og Miðflokkurinn hafnar því alfarið að þessir heilögu þættir teljist söluvara í viðræðum við Evrópusambandið með sína miðstýringu og yfirdrifna regluverk á flestum sviðum. Jafnvel forystumenn Evrópusambandsins sjálfs viðurkenna að mistekist hafi að tryggja samkeppnishæfni gagnvart öðrum efnahagssvæðum, svo sem Bandaríkjunum og Kína, en samt vilja forystumenn ríkisstjórnar Íslands draga Ísland þangað inn með tilheyrandi hættu á stórtjóni og afturför. Miðflokkurinn óttast ekki komandi þjóðaratkvæði. Baráttan fyrir fullveldinu þéttir raðirnar, það sýnir sagan, gefur okkur flokknum og málstað hans aukinn styrk og enginn landsmaður velkist í vafa um það hvar við stöndum í fullveldismálum. Hins vegar gagnrýnir hann leynimakk við Brussel um svo viðamikil mál og eins að umræðan um stjórnleysi á landamærum, vaxandi atvinnuleysi, alvarlegar afleiðingar hækkunar veiðigjalds á byggðir landsins og mörg önnur mál falli í skuggann af harðvítugum deilum og umræðum sem taka yfir allt.

Á þetta höfum við ítrekað bent í þessari umræðu. Vissulega á hugtakið smjörklípa við um kannski minni háttar mál en þetta minnir þó á smjörklípuhugtakið sem var í grófum dráttum þannig, frú forseti, að þegar staðan varð óþægileg og ríkisstjórnin átti í vandræðum, sitjandi ríkisstjórn átti í vandræðum, var oft gott að grípa til einhverra mála sem fengu mikla athygli og urðu umdeild til að fela hið raunverulega vandamál. Í þessu tilfelli er það auðvitað það að ríkisstjórnin sem hafði það númer eitt, tvö og þrjú á sinni stefnuskrá að beita sleggjunni stóru til að ná hér niður vöxtum og verðbólgu er hins vegar að horfa framan í það núna að vextir fara upp, verðbólga hækkar og atvinnuleysi líka. Þess vegna má líkja þessu við hið gamla hugtak um smjörklípuna.

En af hverju erum við yfirleitt að ræða þetta mál núna? Miðflokkurinn telur að ríkisstjórninni hafi algerlega mistekist þetta ætlunarverk sitt sem ég var hér að ræða, að ná niður vöxtum og verðbólgu, og fremur stuðlað að hækkun vísitölu með vanhugsuðum ákvörðunum, t.d. með kílómetragjaldinu sem við margbentum á hvaða afleiðingar myndi hafa og hafa í raun raungerst með miklu þyngri og alvarlegri hætti en jafnvel við sem gagnrýndum það áttum von á og sáum fyrir. Sama gildir um hækkun vörugjalda sem hafa stuðlað að þessari þróun sem ég hef hér verið að fara yfir. Vextir fara bara hækkandi og Seðlabankinn er skilinn einn eftir með verkefnið því stjórnarflokkarnir hafa, að því er virðist, gefist upp á að reyna að ná tökum á stjórn efnahagsmála og þess í stað varpað þessari stóru sprengju inn í íslensk stjórnmál með þessari vanhugsuðu þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um að taka aftur upp viðræður og aðlögun að Evrópusambandinu.

Þetta er í grófum dráttum, frú forseti, ástæðan fyrir því að Miðflokkurinn stendur hér enn í pontu. Hér er ekki verið að standa við stóru orðin. Hér er ekki verið að standa við það loforð sem þjóðinni var gefið um að númer eitt, tvö og þrjú væri að ráðast að helsta vanda þjóðarinnar sem var verðbólga og hækkandi vextir. Þvert á móti hef ég nefnt þætti sem stuðluðu að hækkun vaxta og hækkun á verðbólgu og nú sjáum við í bónus, ef mætti svo óþægilega komast að orði, að atvinnuleysi fer einnig hækkandi.

Frú forseti. Þetta var aðeins örstutt samantekt og lýsing á því hvers vegna við erum enn að, hvers vegna við erum ekki hætt og erum ekki að hætta. Það er vegna þess að þetta mál má ekki verða til þess að hér hætti allir að tala um hinn raunverulega vanda sem þjóðin er að glíma við, hið raunverulega verkefni sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fékk umboð sitt út á, sem var loforðið um að ná tökum á þessum þremur þáttum; verðbólgu, vöxtum og atvinnuleysi.