157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:41]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Ég kemst ekki hjá því að minna hæstv. forseta aftur á það að enn er ósvarað beiðni minni og okkar margra hv. alþingismanna hér, sem ítrekuð hefur verið í dag og í gær, um mikilvægi þess að við fáum að sjá leynigögnin og almenningur fái að sjá leynigögnin. Hvernig er hægt að ætlast til þess að almenningur á Íslandi taki afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu sem stendur til að ráðast í með ærnum tilkostnaði án þess að fólk fái að vita hver staðan er og hvað taki við, segi menn já? Ég ítreka þess vegna þessa beiðni, frú forseti, sem ég hef nokkrum sinnum fengið að heyra að hafi verið komið áfram, en það stendur á svarinu.

Ég hef verið að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og orðið nokkuð ágengt þótt ræðutíminn sé auðvitað mjög naumt skammtaður þannig að það hefur þurft að gera þetta í áföngum. En ég var að ljúka umfjöllun um kaflann sem hét: Hvað þýða valkostirnir? og það er nú aldeilis ekki ótengt leynigögnunum, frú forseti. Ég var búinn að gera grein fyrir því að það var ekki hægt að álykta annað en að nei í atkvæðagreiðslunni þýddi bara óbreytt ástand. Þá gerist ekki neitt. En svo var ég búinn að rekja að nokkru leyti þá þrautagöngu sem það hefði verið innan utanríkismálanefndar og fyrir hv. alþingismenn að fá svör við því hver staðan er og hvað gerist segi menn já. Það var ekki vanþörf á því að málið var kynnt á fölskum forsendum í upphafi eins og síðar kom á daginn. Fullyrt var að í því fælust engar skuldbindingar að segja já, það yrði bara rætt við einhverja fulltrúa Evrópusambandsins, spjallað við þá og þeim gefið tækifæri til þess að gera okkur tilboð. Það reyndist auðvitað ekki rétt. Ég er þá kominn að lokum þessa kafla.

Hvers vegna þessi falska framsetning í upphafi annars vegar og svo þessi mikla áhersla á að halda frá hv. alþingismönnum, og ég tala nú ekki um almenningi, gögnum sem geta skýrt það hvað gerist ef menn segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu? Það er ekki hægt að draga aðra ályktun, frú forseti, en þá að það sé vegna þess að hæstv. ráðherrar og sérstaklega hæstv. utanríkisráðherra telji mikilvægt að þeir geti sjálfir síað og túlkað upplýsingarnar sem almenningur fær aðgang að. Almenningi er ekki treyst betur en svo, þjóðinni er ekki treyst betur en svo að hæstv. utanríkisráðherra telur sig þurfa að hafa fulla stjórn á því hvað menn fái að vita um afleiðingar þess að segja já í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta eru óforsvaranlegar forsendur. Það er óforsvaranlegt fyrir Alþingi Íslendinga að afgreiða málið á slíkum forsendum. Þess vegna ræðum við hér málið enn og krefjumst svara svoleiðis að þingið geti skilið við þetta mál, greitt um það atkvæði og skilið við það með þeim hætti að það sé ljóst hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist um, því ekki snýst hún um það sem haldið var fram í upphafi. Það hefur þó komið fram við vinnslu þessa máls.

Frú forseti. Þá er komið að kaflanum um spurningarnar sem lagðar verða fyrir í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar verður ekki annað sagt en að hv. meiri hluti hér á Alþingi hafi talið sig tilneyddan til að breyta spurningunni vegna þeirrar gagnrýni sem hann hafði fengið. Til upprifjunar, frú forseti, var spurningin: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Svo voru svarmöguleikarnir í löngu máli. Landskjörstjórn og fulltrúar Feneyjanefndarinnar bentu á að þetta gæti verið gildishlaðin og villandi framsetning. Menn þráuðust reyndar við að fallast á það, sem var sérkennilegt í ljósi þess að í rauninni var bent á að þetta stæðist ekki (Forseti hringir.) lög um þjóðaratkvæðagreiðslur. — Nú, frú forseti, það er aldeilis að tíminn líður. En ég ætla að freista þess að klára kaflann um spurninguna í næstu ræðu og bið þess vegna um að verða settur aftur á mælendaskrá.