þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég var hérna í síðustu ræðu minni að fjalla um pistil fyrrverandi ráðherra, Björns Bjarnasonar, sem hann birti á heimasíðu sinni í dag og mér þótti allmerkilegur. Þar er hann í raun og veru að varpa ljósi á þann hræðsluáróður og falsfréttir sem ráðamenn þjóðarinnar halda fram, m.a. í erlendum fjölmiðlum, hræðsluáróður og falsfréttir sem þær halda fram um það hvers vegna þær þurfi að hraða svona svakalega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Ég var búin að vitna til viðtalsummæla sem höfð voru eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Viðreisnar, en nú ætla ég að halda áfram og vitna til skrifa Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, sem varða viðtal við eða það sem haft er eftir forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, í New York Times, með leyfi forseta:
„Blaðamaður The New York Times sem hitti Kristrúnu Frostadóttur segir: „Með öðrum orðum hafa Íslendingar unað glaðir við sitt sem hluti af Evrópu, án þess að vera hluti af ESB sjálfu. En svo hótaði Trump forseti Grænlandi, nánasta nágranna Íslands, og sumir Íslendingar fóru að velta því fyrir sér hvort kominn væri tími til að ganga í stærra bandalag. „Grænlandsdeilan snerti svo sannarlega viðkvæman streng,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við mig í febrúar á skrifstofu sinni í Reykjavík.““
Ég held áfram að vitna til skrifa Björns Bjarnasonar, með leyfi forseta, sem hann birtir í dag:
„Þegar Kristrún og Þorgerður Katrín setja ákvæði sem þær settu í stjórnarsáttmála til heimabrúks svo að þær yrðu ráðherrar í þetta stóra samhengi í samtölum við erlenda blaðamenn grípa þær til upplýsingafalsana …“
Þetta er nákvæmlega það sama og þær saka stjórnarandstöðuna hér um, upplýsingafalsanir. En hvað eru þær sjálfar að gera í erlendum fjölmiðlum? Hvers vegna í ósköpunum gefa þær svona viðtöl í The Guardian og The New York Times? Hvers vegna eru þær með þennan hræðsluáróður á lofti? Mér finnst þetta með ólíkindum og í raun og veru ættu þær að koma hér upp í pontu ef þær væru í húsinu og svara fyrir slíkar upplýsingafalsanir.
Ég held áfram að vitna til skrifa Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, með leyfi forseta:
„Ummælin eru til þess fallin að skapa tortryggni hjá ráðamönnum í Washington. Þau vekja undrun allra sem til þekkja því að það er síður en svo á dagskrá hjá Bandaríkjastjórn að minnka hernaðarlega viðveru sína á N-Atlantshafi og norðurslóðum eins og kom skýrt fram á fundi NATO í Helsingborg í Svíþjóð 22. maí 2026.
Í málflutningi ráðherranna er alið á hræðslu í garð Bandaríkjanna og farið rangt með ástæðuna að baki þjóðaratkvæðagreiðslunni.“
Ég endurtek, og ég er að vitna til skrifa Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, með leyfi forseta: „Í málflutningi ráðherranna er alið á hræðslu í garð Bandaríkjanna og farið rangt með ástæðuna að baki þjóðaratkvæðagreiðslunni.“
Ég held áfram að vitna til skrifa Björns Bjarnasonar, með leyfi forseta:
„Á þeim óvissutímum sem nú ríkja á alþjóðavettvangi er eins misráðið, svo að ekki sé sagt heimskulegt, og verða má að stofna til átaka hér um grunnþætti utanríkisstefnunnar og fara síðan með rangt mál út á við um ástæðu átakanna.“
Svo skrifar fyrrverandi ráðherra, Björn Bjarnason, á heimasíðu sinni í dag. Fyrir þá sem eru hérna úti að hlusta mæli ég með því að fólk fari inn á heimasíðu Björns Bjarnasonar og lesi þetta sjálft vegna þess að hér skrifar sá maður sem kannski er — það eru ekki margir sem hafa jafn mikla þekkingu á utanríkismálum og alþjóðamálum (Forseti hringir.) og Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra. — Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.