157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:52]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Af hverju erum við yfirleitt að ræða þetta mál núna? Miðflokkurinn telur að ríkisstjórninni hafi algerlega mistekist það ætlunarverk sitt að ná niður vöxtum og verðbólgu og fremur stuðlað að hækkun vísitölu með vanhugsuðum ákvörðunum, t.d. um upptöku kílómetragjalds og stórhækkun vörugjalda. Upptaka kílómetragjalds með aðferð sem ekkert annað land hefur tekið upp vegna þess að flækjustigið er með þeim hætti að það hefur ekki verið talið borga sig. Það hefur aldeilis sýnt sig hér heima. Á þetta var bent en ekki var hlustað. Það eru endalaust af vanhugsuðum ákvörðunum og Seðlabankinn er skilinn einn eftir með verkefnið því stjórnarflokkarnir hafa að því er virðist gefist upp á því að reyna að ná tökum á stjórn efnahagsmála og þess í stað varpað sprengju inn í íslensk stjórnmál með vanhugsaðri þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um að taka aftur upp viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nokkuð sem þeir lofuðu fyrir kosningar að væri ekki á dagskrá. Flokkarnir settu þetta til hliðar, vildu ekki kljúfa þjóðina og sögðu að nú væri brýnna mál að ná tökum á íslenskum efnahagsmálum. En hvað gera þeir? Um leið og þeir eru komnir í meiri hluta þá setja þeir í stjórnarsáttmálann að þetta mál verði sett á dagskrá. Svo er því flýtt á tímum þar sem mikilvægt var að taka á málum hér heima og ekki eyða öllum stundum þingsins í það að ræða öll önnur mál en efnahagsmál. Núna er það Evrópusambandið af því að það er búið að kasta inn handklæðinu að reyna að ná tökum á málum hér heima. Ríkisstjórnin ræður ekki við verkefnið.

Svo er okkur sagt að það eigi bara að kíkja í pakkann. Er ekki allt í lagi að kíkja í pakkann? Miðflokkurinn hafnar slíkri sýndarmennsku og blekkingaleik að hægt sé að leika sér þannig með fjöregg þjóðarinnar og fullveldi hennar að hægt sé að kíkja í pakkann hjá Evrópusambandinu og kanna hvernig um semst. Evrópusambandið sjálft hefur marglýst því yfir að umsóknarríki geti varla talist eiga í aðildarviðræðum, fyrst og fremst snúist spurningin um það hversu langar tímabundnar undanþágur fáist frá einstökum samningsköflum, tímabundnar undanþágur til að aðlagast. Það er það sem þetta snýst um. Þetta, frú forseti, er það sem við stöndum frammi fyrir, að enginn kemur í umræðuna frá meiri hlutanum, ekki einu sinni í fyrstu ræðu í þessu risastóra máli, í þessu máli sem Viðreisn er stofnuð utan um. Þá er búið að múlbinda þingmenn flokksins. Af hverju? Vegna þess að þeir mega ekki segja eins og raunveruleikinn er, að þeir vilji ganga í Evrópusambandið sama hvað. Nei, það hentar ekki að þeir komi hér í þessa málstofu og eigi orðastað um það hvað það þýðir að ganga í Evrópusambandið. Og Flokkur fólksins sem er á móti því að ganga í Evrópusambandið en virðist kaupa blekkingaleikinn að það sé hægt að kíkja í einhvern pakka. Ég veit ekki hvað Evrópusambandið þarf að segja þessum hv. þingmönnum það oft að þannig virkar þetta ekki. Þú sækir ekki um aðild að Evrópusambandinu nema vilja fara inn í Evrópusambandið. Svo kann að vera að viðræðurnar renni út í sandinn. Það kann alveg að vera. En þú sækir ekki um nema að ætla þar inn. Þetta held ég að sé lykilatriði sem auðvitað ríkisstjórnin vill fela vegna þess að hún vill taka eitt skref í einu og þegar samningaviðræður eru búnar þá vill hún stýra því hvernig er talað um samninginn. Þá verður talað um undanþágur og þá verður ekki, trúðu mér, talað um að þær séu ekki varanlegar. Það verður bara talað um það að við virðumst hafa náð stórkostlegum samningi. Þá er eins gott að þjóðin, sem ég treysti, kynni sér það vel vegna þess að við erum brennd. Við erum búin að lenda í því að okkur var sagt að við fengjum varanlegar undanþágur frá loftslagssköttum og það var aldeilis ekki rétt. Hvað er Evrópusambandið? Í Evrópu er orkuverð orðið margfalt hærra en í Bandaríkjunum. Evrópsk bílaframleiðsla hefur dregist saman. Hluti Evrópu í stálframleiðslu heimsins hefur fallið hratt. Fjárfestingar og nýsköpun leita annað. Tæknirisarnir verða til í Bandaríkjunum eða Asíu og alls ekki í Evrópu. Og af hverju? — Frú forseti. Tími minn er á þrotum. Ég fæ að klára þetta síðar og óska eftir að vera sett aftur á mælendaskrá.