þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég hef í nokkrum ræðum hér á undan rætt um undanþágur frá reglum Evrópusambandsins, grundvallarreglum þess. Nú ætla ég að venda kvæði mínu í kross og ræða örlítið samningsmarkmiðin sem hvert aðildarríki sem hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið hlýtur að hafa mótað áður en til aðildarviðræðna kemur. Það er auðvitað þannig að ríki sem fara í aðildarviðræður hafa tekið ákvörðun um að ganga í Evrópusambandið. Ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu og lýsir því yfir að það vilji koma þangað inn að undangengnum alls konar þáttum, það er með mismunandi hætti hvernig ríki undirbúa þjóð sína fyrir þessar aðildarviðræður. Það liggur a.m.k. fyrir þegar aðildarviðræður ríkja hefjast við Evrópusambandið að viðkomandi ríki vill ganga í Evrópusambandið. Það eru engin dæmi um öðruvísi aðildarviðræður við Evrópusambandið en að það liggi fyrir vilji til að ganga í Evrópusambandið. Það hefur ekkert ríki ákveðið, hvort sem er að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu eða annað, að kanna hvaða samning ríkið fær við Evrópusambandið. Það liggur alltaf fyrir raunverulegur vilji til að ganga í Evrópusambandið.
Frá mínum bæjardyrum séð hvað þessar fyrirhuguðu aðildarviðræður varðar er það einbeittur ásetningur þessarar ríkisstjórnar að fara í aðildarviðræðurnar og ég hygg að allir þingmenn og hæstv. ráðherrar þessarar ríkisstjórnar muni greiða í þjóðaratkvæðagreiðslunni atkvæði þannig að þau munu leggjast á eitt um að reyna að ná fram meiri hluta í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir aðildarviðræðum. Frá mínum bæjardyrum séð er það einbeittur ásetningur þessarar ríkisstjórnar að Ísland gangi í Evrópusambandið. Því miður hafa mjög fáir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna flutt ræður við meðferð þessa þingmáls en þeir sem þó hafa gert það hafa lýst yfir eindregnum áhuga á því að fara í Evrópusambandið. Þeir hafa gert það í þingræðum með óbeinum hætti. Þeir hafa gert það jafnvel með beinum hætti á samfélagsmiðlum með yfirlýsingum og fullyrðingum um hvernig allt muni breytast til batnaðar á Íslandi með aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þannig að í mínum huga þarf ekkert að velkjast í vafa um það að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er tilhlaup í átt að aðildarviðræðum og þeir sem ætla að fara fyrir samningahópi Íslands eða fyrir viðræðunum fyrir hönd Íslands hafa einbeittan ásetning til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið, að Ísland verði eitt aðildarríkja Evrópusambandsins. Ég er auðvitað ósammála því og ég kem að því af hverju það er seinna í ræðu.
En það sem vantar átakanlega í meðferð þessa máls er að hver einasti ráðherra í þessari ríkisstjórn lýsi því yfir við meðferð þessa máls að hvaða leyti ráðherrann og ráðuneyti hans ætli að undirbúa þessar aðildarviðræður með tilliti til þeirra málaflokka sem undir ráðherrann heyra. Hver einasti fagráðherra þarf að mínu mati, og allir ráðherrarnir, allir sem einn, hefðu fyrir löngu átt að sjá sóma sinn í því við meðferð málsins hjá utanríkismálanefnd, í síðasta lagi í umræðu hér í þingsal, að útskýra það fyrir þjóðinni, þingheimi og þar með þjóðinni, hvaða samningsmarkmið Ísland ætti að hafa í tilteknum málaflokki. Ég tek bara sem dæmi heilbrigðisráðuneytið. Hvaða áherslur ætlar heilbrigðisráðherra að leggja í viðræðum við Evrópusambandið, einkum og sér í lagi þegar nú eru að fara að hrúgast inn fátæk ríki með mikla örorkubyrði og miklar skuldbindingar og miklar kröfur á innviði eins og almannatryggingakerfi og heilbrigðiskerfi? Af hverju hefur þessum málum ekki verið svarað? (Forseti hringir.) Nú ætla ég að taka fyrir hvern einasta málaflokk allra ráðherra hér til að reyna aðeins að varpa ljósi á hvað það er sem menn ættu að hafa í huga þar.