157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:28]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir mikilsverðum upplýsingum í þessu máli og reynir að breiða yfir augljósar staðreyndir í því. Þar má nefna eðli viðræðnanna sem gætu verið fram undan. Eðli þeirra er að við sækjum um aðild á grundvelli þeirra laga og reglna sem Evrópusambandið býr við og að þeim þurfum við að aðlaga okkur til að geta gengið inn í sambandið. Evrópusambandið er ekki að fara að ganga í Ísland. Þeir eru að fara að taka okkur inn í sitt ríkjasamband sem er þúsund sinnum fjölmennara en þessi þjóð. Ísland er í þessu samhengi jafn stórt innan Evrópusambandsins og Grímsey er innan Íslands. Í þessu samhengi má ímynda sér hversu miklu það munar fyrir Evrópusambandið að gleypa í raun svo fámenna þjóð fyrir þær auðlindir sem á móti myndu koma, bestu fiskimið í álfunni og grænar orkulindir.

Annað er að það eru engar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Það er staðreynd sem ríkisstjórnin neitar að treysta þjóðinni fyrir og viðurkennir það ekki. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að íslenskur sjávarútvegur og landbúnaður muni falla undir sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Einu undantekningarnar þar eru þeir tímafrestir sem við gætum hugsanlega fengið á þeirri aðlögun.

Herra forseti. Sama má segja um landamærin. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að gæsla landamæranna yrði að samrýmast reglum Evrópusambandsins en myndi ekki þjóna íslenskum hagsmunum á hverjum tíma við gæslu landamæranna. Hæstv. ríkisstjórn treystir ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að árleg framlög Íslands til Evrópusambandsins muni hlaupa á tugum milljarða króna enda yrðum við með auðugustu ríkjum sambandsins. Með lævísum hætti koma þeir með þessa innantómu yfirlýsingu um að þeir treysti þjóðinni og leitast þannig við að smækka þá sem vilja allar upplýsingar og samningsmarkmið Íslands upp á borðið.

Herra forseti. Hver eru samningsmarkmið Íslands? Hvar getur fólk fundið stefnu ríkisstjórnarinnar hvað varðar sjávarútvegsauðlindina eða orkuauðlindirnar eða landbúnaðinn, fæðuöryggið og heilnæmi innlendrar framleiðslu landbúnaðarafurða? Nei, herra forseti, ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum. En treystir þjóðin Viðreisn til að leiða þetta mál á farsælan hátt? Treystir þjóðin hæstv. utanríkisráðherra til að skipa samninganefnd í viðræðum við Evrópusambandið? Ráðherrann tilkynnti okkur stolt í haust um skertan hlut okkar til veiða í makrílstofninum. Munu kjósendur treysta hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar til að leiða komandi viðræður eftir að hún taldi verndartolla Evrópusambandsins sem á okkur voru lagðir síðastliðið haust ásættanlega niðurstöðu?

Herra forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslan í haust snýst um það hvort við treystum hæstv. utanríkisráðherra til að stjórna og leiða samningaviðræður við kommissarana í Brussel. Hæstv. utanríkisráðherra á allt undir að þessir samningar takist. Allt undir því. Tilvera og líf Viðreisnar er í raun háð þessari draumsýn þeirra um eilífa vist í Evrópusambandinu á meðan samskiptin við kommissarana í Brussel er að finna í leyniherbergi og þjóðinni er ekki treyst til að sjá gögn um þessa fundi og samskipti hæstv. utanríkisráðherra við kommissarana í Brussel.