þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég sé mig knúinn til þess að minna á það eina ferðina enn að ekki hefur verið brugðist við beiðni minni og fjölmargra hv. þingmanna í dag og í gær um að hæstv. forseti beiti sér fyrir því að frelsa gögnin, opna leyniherbergið, til að varpa ljósi á hvers er að vænta ef menn segja já í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur gengið afskaplega erfiðlega að fá svör við því frá hæstv. ráðherrum og hv. þingmönnum meiri hlutans sem hafa ýmist verið með villandi yfirlýsingar þar um, eins og komið hefur á daginn, eða leitast við að fela gögn um það mál. Þá er því komið á framfæri í eina ferðina enn, herra forseti.
En ég var að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og ég var kominn að kaflanum um spurninguna sjálfa, spurninguna sem áformað er að spyrja í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er búinn að rekja það hvernig meiri hlutinn hefði verið gerður afturreka með upprunalega spurningu sem þó þurfti töluvert til að fá hv. þingmenn meiri hlutans í hv. utanríkismálanefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að fallast á að fengi ekki staðist og það þrátt fyrir að komið hefðu athugasemdir bæði frá landskjörstjórn og Feneyjanefndinni og landskjörstjórn raunar bent á að spurningin væri ekki alveg í samræmi við lög. Það var ekki um annað að ræða en að fallast á breytingu á spurningunni og nú liggur fyrir breytingartillaga af hálfu meiri hluta utanríkismálanefndar sem er vissulega til bóta. Spurningin er mun skárri en sú sem lagt var upp með sem var bara, eins og fram kom í gagnrýni á spurninguna, villandi og gildishlaðin.
En spurningin eins og hún er núna samkvæmt breytingartillögu er þó ekki alveg sanngjörn því að hún er örlítil leiðandi enn þá og við í minni hlutanum höfum lagt til að spurt verði einfaldlega, sem er mjög skýr spurning: Vilt þú ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Já eða nei. Þetta er skýr spurning og menn geta þá vonandi kynnt sér hvað það að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið þýðir. Við eigum eftir að sjá hvort fallist verði á þessa breytingartillögu. En í umræðu um þetta mál sem varðar spurninguna hefur sérstaklega hv. þm. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, lagt mikla áherslu á að fulltrúar fyrrnefndrar Feneyjanefndar hafi lagst gegn því að spurt yrði: Vilt þú ganga í Evrópusambandið? Gott og vel en það hefur verið látið hjá líða að nefna hvers vegna sú spurning þætti óheppileg. Það er vegna þess að íslensk stjórnvöld vita ekki hvort Evrópusambandið hleypi Íslandi inn. Með öðrum orðum: Það er ekki vitað hvort íslensk stjórnvöld nái að uppfylla allar kröfur Evrópusambandsins. Spurning á borð við: Viltu sækja um aðild að Evrópusambandinu með það markmið að ganga inn? — Það er ekkert að þeirri spurningu enda sækir ekkert ríki um aðild að Evrópusambandinu öðruvísi en að ætla sér að ganga þar inn. Þess vegna er málatilbúnaðurinn allur í kringum þetta mál, spurninguna og rökstuðningurinn fyrir málinu, búinn að markast af því hversu villandi hann er.
Ég hef nefnt það áður að ekkert annað ríki, engin stjórnvöld í nokkru öðru Evrópuríki, hefur látið sér detta það í hug að hægt sé að telja almenningi í sínu landi trú um það að það að sækja um aðild að Evrópusambandinu snúist um eitthvað allt annað en að vilja ganga í Evrópusambandið, snúist bara um að leita tilboða. Enginn hefur gerst svo ósvífinn nema íslensk stjórnvöld að reyna að halda slíku fram. En næst víkur sögunni að kafla um tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, herra forseti. En tíminn er á þrotum og ég æski þess að vera settur aftur á mælendaskrá.