157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:38]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Líkt og í annarri ræðu minni hér í þessari seinni umræðu um þessa þingsályktunartillögu utanríkisráðherra Viðreisnar sem við ræðum, og enn er mikið órætt í, hef ég ræðu mína á því að ræða aðeins um Jón Sigurðsson sem er oft nefndur Jón forseti. Eini Íslendingurinn sem fær málverk af sér hér upp á vegg í þingsal. Hvers vegna ætli það sé? Það er mjög við hæfi að í þingsal séu uppi málverk af sjálfstæðissinnanum og baráttumanninum Jóni Sigurðssyni. Á þessu ári eru 82 ár liðin frá stofnun lýðveldisins Íslands, 82 ár, og Jón Sigurðsson, oft nefndur Jón forseti, myndi sennilega snúa sér við í gröfinni ef hann heyrði þessa umræðu sem fram fer í þessum þingsal. Til hvers var hans barátta hér á árum áður? Til hvers? Til að minnast hans var t.d. fæðingardagur Jóns Sigurðssonar, 17. júní, valinn þjóðhátíðardagur Íslands þegar lýðveldið Ísland var stofnað. Hvers vegna ætli það sé? Það er vegna þess að þeir sem völdu þennan dag báru virðingu fyrir baráttu hans og samferðamanna hans.

Nú er það svo að hér eru flokkar á Alþingi í ríkisstjórn sem hafa það yfirlýsta markmið að ganga í ESB, að ganga í Evrópusambandið sem er yfirþjóðlegt apparat. Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla um aðlögunarviðræður sem við erum að ræða er liður í ESB-vegferð þessarar ríkisstjórnar. Hér er einn flokkur í ríkisstjórn, Viðreisn, klofningur úr Sjálfstæðisflokknum, sem er stofnaður um það eina mál að ganga í ESB, að fara með Ísland í ESB alveg sama hvað tautar og raular. Einn flokkur á Alþingi. Jú, Samfylkingin hefur verið með þetta á stefnuskrá sinni lengi en það er Viðreisn sem er frekjan í þessu sambandi. Það er Viðreisn sem knýr þetta mál áfram. Við skulum hafa það alveg á tæru. Og hvers vegna stendur Miðflokkurinn hér einn flokka vaktina í þessu máli? Hvers vegna er Miðflokkurinn eini flokkurinn sem stendur hér og krefst þess að fá upplýsingar, krefst þess að leynd verði létt af upplýsingum sem eru lokaðar inni í leyniherbergi, sem krefst þess að ríkisstjórnin komi fram með samningsmarkmið, setji fram rauðar línur þannig að Íslendingar viti hvað verið er að kjósa um þegar þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram, sem verður kannski 29. ágúst? Ég held að það sé óljóst eins og staðan er núna. (Forseti hringir.) — Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá, forseti.