157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:44]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Það mál sem við ræðum hérna er auðvitað í grunninn og í eðli sínu fullveldismál. Það snýst þegar öllu er á botninn hvolft fyrst og fremst um fullveldi þjóðarinnar. Við Íslendingar höfum nýtt þetta fullveldi allvel í áranna og áratuganna rás. Það má nefna sem dæmi þegar við færðum út landhelgina, efnahagslögsöguna. Það má rifja upp slaginn í Icesave og slaginn við kúgunartilburði vogunarsjóðanna. Þá glæstu sigra unnum við alla með samstilltu átaki og létum hvorki blekkingaleiki né úrtölumenn villa okkur sýn.

Hvað er það sem Miðflokkurinn vill núna? Ég fékk þessa spurningu senda áðan. Mér er bæði ljúft og skylt að svara henni. Eins og margsinnis hefur verið nefnt hér, herra forseti, í ræðum og í fundarstjórn forseta: að aflétta verði leynd af mikilvægum upplýsingum sem miklu máli skiptir að landsmenn hafi aðgang að til að móta sér afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fyrir liggur að hæstv. ráðherra var gerður afturreka með upphaflegu spurninguna fyrir þessa þingsályktunartillögu og hver er að segja að málið þoli ekki frekari breytingar til batnaðar? Þolir málið ekki frekari breytingar til batnaðar því að fyrri gagnrýni á fyrri stigum, sem Miðflokkurinn m.a. stóð hér í pontu og rakti, bar árangur? Ég veit ekki betur en að hér hafi stigið í pontu fulltrúar meiri hlutans og gengist við því að fyrir tilstuðlan umræðunnar hafi í það minnsta spurningin og sú gagnrýni sem beindist að upphaflegu orðalagi spurningarinnar látið undan, þ.e. það er komið í ljós að sú gagnrýni átti rétt á sér enda var sú gagnrýni seinna studd af bæði áliti landskjörstjórnar sem og áliti Feneyjanefndarinnar.

Af hverju liggur svona mikið á? Í stjórnarsáttmálanum sjálfum segir að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram eigi síðar en árið 2027 svo að þessi asi, þessi tímapressa sem þing og þjóð eru nú sett í er algjörlega heimatilbúin af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. Miðflokkurinn sér bara tækifæri, eingöngu tækifæri í því að sýna hvað í okkur býr og sannfæra þjóðina með sér um þá glæstu framtíð sem Ísland og Íslendingar geta átt til langrar framtíðar utan Evrópusambandsins. En þá þurfa líka allar upplýsingar að liggja fyrir og ríkisstjórnin að standa undir ábyrgð sinni. Þangað til það gerist er Miðflokkurinn reiðubúinn að standa vörð hér í þessum þingsal og alls staðar í samfélaginu um fullveldi þjóðarinnar og mun hvergi draga af sér í þeim efnum.

Ég sé að ég á lítinn tíma eftir en ég ætla nú samt, með leyfi herra forseta, að víkja stuttlega að grein í Viðskiptablaðinu sem er skrifuð upp úr Facebook-færslu frá Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. Greinin er birt, eins og áður hefur komið fram, í Viðskiptablaðinu undir fyrirsögninni „Algjör misskilningur að verðbólga lækki sjálfkrafa með ESB eða evru“.

„Hilmar Þór Hilmarsson segir að verðbólga ráðist ekki sjálfkrafa af því hvort ríki sé í Evrópusambandinu eða á evrusvæðinu.

Það er „alger misskilningur“ að verðbólga lækki sjálfkrafa ef ríki gengur í Evrópusambandið eða myntbandalagið og tekur upp evru.

Hilmar Þór er með doktorspróf frá American University í opinberri stjórnsýslu og þróunarhagfræði. Sérsvið hans eru hagfræði og alþjóðaviðskipti.“

Mér vinnst ekki tími, herra forseti, til að fara dýpra í það sem áðurnefndur Hilmar Þór hefur fram að færa en ég mun sannarlega gera það í næstu ræðu því að þessi grein og þessi skrif Hilmars Þórs eru merkilegt innlegg í umræðuna sem á sér hér stað.