þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Við höfum verið að ræða hér stöðu mála í þinginu, þessa Evrópusambandsumsókn. Mig langar að beina því til forseta áður en ég byrja mál mitt að hlutast til um það að fá að vita hvernig gengur að fá upplýsingar um hvort leynd verði aflétt af þeim gögnum sem ríkisstjórnin vill ekki sýna þjóðinni. Þingmenn utanríkismálanefndar einir mega sjá þessi gögn ef þeir lofa um aldur og ævi að birta ekkert og tala ekkert um hvað þeir sjá þar. Þetta er auðvitað óboðlegt þannig að ég beini þessu til forseta.
Ég var að fara yfir áðan, þegar ég rann út á tíma, hvernig staðan er í Evrópusambandinu miðað við víða annars staðar. Þetta er mikilvægt því að við þurfum að átta okkur á því hvað Evrópusambandið er ef við ætlum að geta kosið hér í haust um það hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. Staðan er þannig að orkuverð í Evrópu er orðið margfalt hærra en í Bandaríkjunum. Evrópsk bílaframleiðsla hefur dregist saman. Hlutur Evrópu í stálframleiðslu heimsins hefur fallið hratt. Fjárfestingar og nýsköpun leita annað. Tæknirisarnir verða til í Bandaríkjunum og Asíu en ekki Evrópu. Og af hverju? Vegna þess að þegar heimurinn hreyfist hratt þá bregst risastórt miðstýrt bákn augljóslega mjög hægt við. Fyrirtæki innan Evrópu kvarta undan endalausu regluverki, skýrslugerðum, alls konar sjálfbærnikröfum, eftirliti og flóknum ferlum sem kosta auðvitað tíma, peninga og orku. Jafnvel leiðtogar innan Evrópusambandsins eru farnir að átta sig á stöðunni. Þeir eru farnir að benda á að regluverkið sé orðið allt of íþyngjandi. Það er athyglisvert að á sama tíma og forsvarsmenn í Evrópu tala um að einfalda regluverkið tala sumir hérna á Íslandi eins og lausnin á öllum okkar áskorunum sé að ganga enn lengra inn í þetta bákn.
Nú eru komin nokkur ár frá því að byrjað var að benda á hvernig flókið regluverk Evrópusambandsins er farið að skekkja og draga úr samkeppnishæfni Evrópusambandsins en ekkert gengur að snúa því við eða vinda ofan af þessu bákni. Við erum í EES-samstarfinu. Við höfum aðgang að innri markaðnum. Við njótum frjáls flæðis vöru, þjónustu, fólks og fjármagns og við höfum enn stjórn á fiskveiðiauðlindinni okkar. Við höfum sjálfstæða stefnu þegar kemur að tollabandalaginu og við höfum þann sveigjanleika sem við þurfum. Þannig að við þurfum að spyrja okkur að þessu: Af hverju ættum við að færa meira vald frá Íslandi inn í bákn sem jafnvel leiðtogarnir í Evrópu eru sjálfir farnir að átta sig á að er orðið of þungt og hægt og farið að bitna verulega á Evrópusambandinu, þ.e. löndum innan sambandsins? Og af hverju ættum við að festa komandi kynslóðir inni í sambandi sem glímir við frekar hægan hagvöxt, mikla reglugerðarvæðingu, dýra orku og versnandi samkeppnisstöðu?
Þetta snýst nefnilega ekki um að vera á móti Evrópu. Ísland er í Evrópu og við munum alltaf eiga náið samstarf við Evrópu. Við erum, eins og ég kom inn á, með EES-samninginn en það er munur á samstarfi eins og EES-samningnum og því að framselja sífellt meira vald til yfirþjóðlegs kerfis og búta af sjálfstæði okkar hægt og hægt. Þegar við erum komin þarna inn eru engar líkur á því að Evrópusambandið stoppi, að Evrópusambandið hætti að stækka. Eðli risastórra kerfa og bákna er bara með þeim hætti að þau minnka sig ekki sjálf. Ég held að við á Íslandi ættum að hlusta á menn eins og Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra í Evrópu, sem sagði sjálfur að Evrópusambandið þyrfti að óttast sjálft sig ef það breytti ekki um stefnu. Það er ekki að ná að breyta um stefnu, af hverju ættum við að ganga þar inn?
Herra forseti. Ég bið þig um að setja mig aftur á mælendaskrá svo ég geti farið betur yfir þessi mál.