157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:56]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég var í síðustu ræðu minni að nefna það að það er algjörlega óásættanlegt að mínu mati, og ég held að það mætti örugglega segja, af hálfu þeirra þingmanna sem sitja hér í minni hluta, að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi ekki komið og gert grein fyrir sínum áherslum, þeim áherslum sem þeir telja að sé mikilvægt að halda til haga við aðildarviðræðurnar. Í hverjum einasta málaflokki hvers ráðuneytis hljóta að vera einhver mál sem varða hagsmuni Íslands sérstaklega og ef svo er þá er rétt að það komi fram í aðdragandanum, fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna en ekki eftir hana. Það er mikilvægt að þjóðin fái að vita hvaða áherslur og hvaða markmið ráðherra ætlar að setja við aðildarviðræðurnar. Ég ætla að taka dæmi bara um eitt mál hér. Ég nefndi heilbrigðismálin í fyrri ræðu. Ég ætla núna að taka hérna loftslagsmálin því að þau eru mikið til umræðu á Íslandi. Ísland er, ég segi heimsmeistari þegar kemur að loftslagsmálum; 85–90% af heildarorkunotkun á Íslandi stafar frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta hlutfall er kannski 20% í mesta lagi í löndum Evrópusambandsins en það er sérstakt markmið hjá mörgum ríkjum og Evrópusambandinu sjálfu að koma þessu hlutfalli Evrópusambandsríkjanna upp í 30% og þætti bara mikill sigur í flestum löndum að gera það. En hér erum við nú þegar búin að ná 80–90% markinu, sem ég ætla að fullyrða að ríki Evrópusambandsins muni trúlega aldrei ná. En allt að einu eru mikil áform um markmið í þessu sambandi og mikið lagt upp úr losun á markmiðum. Evrópusambandið hefur útbúið reglur um þessi mál sem eiga að draga úr losun, reglur sem eru mjög hamlandi fyrir þessi ríki og íbúa þessara ríkja. Þær kalla á mikil útgjöld sem hafa að sama skapi þau áhrif að peningunum sem varið er í þetta háleita markmið, að draga úr losun kolefnis í þessum löndum þess — það fjármagn verður ekki notað í eitthvað annað skynsamlegra í þessum löndum eða í önnur verkefni sem eru meira aðkallandi. Þannig að það liggur alveg fyrir að Ísland hefur mikla sérstöðu í þessum efnum. Allt að einu hefur Ísland einhvern veginn verið að kæra sig inn í þessi markmið Evrópusambandsins með nákvæmlega engum árangri. Samdráttur hér í losun getur ekki orðið jafn mikill hér og í öðrum löndum þar sem losunin er mjög mikil vegna þess að hér erum við komin upp að í rauninni tæknilegu þolmörkunum með 85–90% hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa. En gott og vel. Við erum í þessu samstarfi og höfum innleitt eitthvað af þessu í gegnum EES-samninginn, eða að mestu leyti, algerlega að ósekju og algerlega að óþörfu.

Ég spurði hæstv. umhverfisráðherra einmitt að því í óundirbúnum fyrirspurnum, af því að það er eina tækifærið til að eiga orðastað við þessa ráðherra vegna þess að ekki láta þeir sjá sig hér í þessari umræðu: Hvaða markmið ætla menn að setja sér, hvaða markmið ætlar Ísland að setja sér þegar kemur að þessum málefnum? Ísland hefur fengið ákveðnar sérlausnir og undanþágur frá hluta löggjafar Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn að því leyti að Ísland hefur verið að innleiða sumar af þessum reglum frá Evrópusambandinu en þó með einhverjum undanþágum. Það liggur alveg skýrt fyrir í samningsramma Evrópusambandsins, sem kynntur var árið 2010, að Evrópusambandið gerði það að skilyrði fyrir aðildarviðræðunum á þeim tíma að þær undanþágur og þær sérlausnir sem Ísland hefði í gegnum EES-samninginn væru ekki fordæmisgefandi fyrir aðildarviðræðurnar, þannig að þær sérlausnir sem EES-samningurinn veitir myndu falla niður og þyrfti að semja um þær aftur.

Að mínu mati er mjög mikilvægt að íslenska þjóðin fái að vita það fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hvaða samningsmarkmiðum Ísland ætlar að halda á lofti þegar kemur að loftslagsmálum. Ætla menn að taka upp allar reglur Evrópusambandsins að þessu leyti með öllum þeim tilgangslausa kostnaði sem því fylgir í þágu eiginlega ekki nokkurs árangurs þegar kemur að losun kolefnis?