157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:02]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég hef í fyrri ræðum rakið hvað tekur við ef svarið við þessari þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér er ályktað um verður já. Þótt ekkert bendi með afgerandi hætti til að svo verði er tilefni á þessu stigi til að glöggva sig á því til hvers það getur leitt og ég tala nú ekki um ef við rötum þá alla leið inn í Evrópusambandið eftir síðari atkvæðagreiðslu sem boðað er að verði. Þótt margir dragi í land með það hvort slík atkvæðagreiðsla verði þá gerir maður ráð fyrir því að ef farið verður inn að lokum verði það á grundvelli síðari þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þá erum við farin inn í Evrópusambandið með tilheyrandi margvíslegum, margþáttuðum afleiðingum fyrir þjóðina. Það sem maður sér núna í umræðu um bara þessa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi viðræður við Evrópusambandið, aðlögunarviðræður, er að þar er strax fjallað um það sem mikinn efnahagslegan hvalreka fyrir íslensku þjóðina. Þar muni reka á okkar fjörur einhver hundruð milljarða í krónum talið í formi lægri vaxta og fjölbreyttrar verðbólguþróunar.

Nú er mjög mikilvægt að árétta í þessari umræðu að þegar menn taka þann eina þátt út fyrir sviga í umræðunni, heildarmynd efnahagsmála Íslendinga, hvort sem þeir eru þá inni í Evrópusambandinu eða utan þess, og láta eins hann sé upphaf og endir allra mælinga er það auðvitað ekki heiðarleg leið til þess að tala um heildarhagsmuni Íslendinga gagnvart inngöngu í Evrópusambandið, hvort þeim sé betur borgið þar inni eða utan. Þegar menn tala um það hvaða hlutverki gjaldeyririnn, sem sagt íslenska krónan, hvað hlutverki sjálfstæður gjaldmiðill með sjálfstæða peningastefnu gegnir í okkar hagkerfi og sem hluti af viðbragðstækjum íslenskra stjórnvalda og þeirra sem fara með yfirstjórn peningamála á Íslandi til að bregðast við sveiflum í hagkerfinu, þá verður maður auðvitað að átta sig á því með þennan sjálfstæða gjaldmiðil að eins og hann getur jú sannarlega haft í för með sér háa vexti til skemmri tíma eða lengri þá hefur hann hins vegar þann eiginleika að hægt er að láta áföll sem á okkur dynja finna sér farveg í gegnum breytta stöðu gjaldmiðilsins, hvort sem hann veikist eða styrkist eða hvernig vextir hækka eða lækka. Ef því væri ekki til að dreifa, því stjórntæki í peningamálum, þessum vöxtum og veikingu og styrkingu gjaldmiðilsins, myndu þessi áföll finna sér annan farveg í hagkerfinu, rétt eins og þau gera í Evrópusambandsríkjum til skemmri eða lengri tíma á einum tíma eða öðrum tíma, ólíkt eftir ríkjum vegna þess að þar er miðlæg peningastefna sem tekur ekki tillit til séraðstæðna hverrar þjóðar. Það þýðir að þegar efnahagsáföll dynja á getur atvinnuleysi rokið upp í hæstu hæðir á meðan það gerir það ekki hér vegna þess að menn láta viðbragðið koma fram með öðrum hætti í hagkerfinu. Þannig að það ber að vara við ofureinföldun þessarar efnahagsumræðu og þeim gylliboðum sem sett eru fram með mjög misheiðarlegum hætti í þessari umræðu, að það sé töfralausn efnahagsmála á Íslandi að ganga inn í Evrópusambandið. Ég tala nú ekki um að þegar menn ræða evruna í þessu sambandi þá undirgangast menn ekki þann gjaldmiðil nema hafa þegar náð ákveðnum markmiðum í verðbólgu og öðru eins. Þeir taka hana ekki upp fyrr þannig að ef það væri búið að ná stjórn á efnahagsmálum hér, rétt eins og þessi ríkisstjórn boðaði og lofaði að hún myndi gera, ef slíkt væri búið væri náttúrlega spurning hvort næsta skynsamlegasta skrefið væri sannarlega að fara inn í evruna, þegar það væri þegar búið að ná stjórn á efnahagsmálunum sem væri þá skilyrði fyrir því að taka upp evruna. Sá málflutningur gengur því ekki upp að taki menn upp evruna leysist þar með allt málið. Menn þurfa fyrst að taka til í eigin ranni áður en evran er tekin upp og þegar þeir eru búnir að gera það eru hagsmunirnir af því að missa þessa stjórn á peningamálum varla það knýjandi að hún ætti yfirleitt að vera tekin upp. Að því marki er í þessu sambandi tómt mál að ræða yfirleitt um þetta.

Að því sögðu eru náttúrlega margir aðrir þættir sem við ræðum hérna um í samhengi við efnahagsmálin, ungt fólk, íbúðamarkað og annað eins í sambandi við Evrópusambandið, sem væri vert að taka til frekari umræðu og því óska ég eftir að vera settur aftur á mælendaskrá.