157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:07]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Eitt af því sem stuðningsmenn aðildar hafa notað til að ginna fólk til stuðnings við þessa tillögu sem við ræðum hér er að upptaka evru myndi þýða snarlækkun vaxta hér á landi og koma þannig húsnæðiseigendum og húsnæðiskaupendum til góða. Sannleikurinn er reyndar sá að Evrópusambandið leyfir engri þjóð að taka upp evru nema henni hafi áður sjálfri tekist að haga ríkisfjármálum sínum á þann hátt að vextir og verðbólga séu áþekk því sem gengur og gerist í Evrópusambandinu. Um þetta hef ég reyndar oft rætt í þinginu, að ríkisstjórnin þurfi að takast á við ríkisfjármálin af þeirri festu sem dugir. Þá dugir ekki að hækka ríkisútgjöld um 143 milljarða á milli ára og stórauka skatta á allan almenning og atvinnurekstur í landinu.

Frú forseti. Segjum sem svo að evran yrði lögeyrir hér á landi. Þá yrðum við berskjölduð fyrir áhrifum efnahagsáfalla sem við þekkjum svo vel frá fyrri tíð, t.d. áfalla sem tengjast sjávarútvegi. Slík áföll hér á landi munu ekki snerta þjóðirnar á meginlandi Evrópu og það sem meira er er að slík efnahagsáföll hefðu engin áhrif á evruna, engin. Öll aðlögun vegna slíkra áfalla hér á landi gæti því ekki farið fram um farveg gjaldmiðilsins, eins og við þekkjum svo vel hér á landi. Slík áföll myndu birtast í auknu atvinnuleysi, frú forseti, hér á landi. Með því að taka upp evruna værum við að opna á að áföll sem við þekkjum allt of vel hérlendis, og hafa hingað til endurspeglast í breyttu gengi krónunnar, myndu eftir upptöku evru birtast í stórfelldu atvinnuleysi. Það er mesta böl sem fólk lendir í.

Atvinnuleysi snýst um að fólk getur ekki aflað sér lífsviðurværis, frú forseti. Það er því öfugsnúið að stjórnmálaflokkur sem hefur skreytt sig með slagorðinu fæði, klæði og húsnæði skuli nú standa að ríkisstjórn sem stefnir að því að færa landið inn í Evrópusambandið þar sem atvinnuleysi er landlægt og atvinnulaust fólk hefur ekki tækifæri eða möguleika á að afla sér lífsviðurværis — ekki möguleika, frú forseti, á að afla sér lífsviðurværis. Við hér á Íslandi höfum að mestu verið laus við atvinnuleysi, og af hverju skyldi það hafa verið? Vegna þess að krónan hefur tekið á sig aðlögunina en með evrunni yrði það vinnandi fólk sem yrði að gjalda fyrir það með því að missa atvinnuna. Það væri nýlunda ef hæstv. ríkisstjórn myndi nú viðurkenna þessar staðreyndir í stað þess að blekkja fólk með tröllasögum um að upptaka evru myndi færa hér allt í hið besta horf. Atvinnuleysi þekkja þjóðir Evrópu hins vegar vel þar sem það er landlægt, sérstaklega meðal ungs fólks.

Frú forseti. Um verðbólguna má segja það sama: Verðbólgan mun ekki hverfa þótt við göngum í Evrópusambandið. Það var einmitt grein um þetta í Viðskiptablaðinu í gær en þar segir dr. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, að það sé algjör misskilningur að verðbólga lækki sjálfkrafa með inngöngu í Evrópusambandið eða með upptöku evru. Þar vísar Hilmar til gagna frá Eurostat um verðbólgu í Evrópu í apríl þar sem kemur fram að verðbólga sé mismunandi milli ríkja, óháð því hvort þau séu í Evrópusambandinu eða á evrusvæðinu.

Svo mörg voru þau orð, frú forseti. Verðbólga mun ekki hverfa með inngöngu í Evrópusambandið eða upptöku evru. Hún mun ekki hverfa. Vextir munu ekki sjálfkrafa lækka og fylgifiskur áfalla í efnahagslífinu hér á landi mun hafa áhrif á atvinnustig, eins og í Evrópu.