157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langar í þessari ræðu minni að koma aðeins inn á breytt sjónarmið gagnvart mögulegri inngöngu í Evrópusambandið í dag samanborið við það sem var þegar sótt var um hér í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar undir forystu Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi utanríkisráðherra. Ekki bara eru aðstæður hér heima, annars vegar í kjölfar bankahruns og úti í Evrópu á sama tíma, gjörólíkar því sem blasir við okkur í dag, þó að því miður sé auðvitað þyngra en tárum taki hversu illa ríkisstjórninni hefur tekist til við að eiga við verðbólgudrauginn og hversu treg ríkisstjórnin hefur verið til þess að grípa til þeirra aðgerða sem mest gagn er af, en þá er staðan sem við blasir núna gjörólík. Hinum megin blasir núna við bandalag stöðnunar í Evrópusambandinu. Burðarríkin, Þýskaland og Frakkland, horfa fram á umtalsverða erfiðleika. Það hefur verið meira og minna hér um bil enginn hagvöxtur í Þýskalandi um langt árabil, mjög langt raunar. Frakkland er síðan í meiri háttar vandræðum á mörgum sviðum með sínar ófjármögnuðu lífeyrisskuldbindingar sem einhvers lags snjóhengju vofandi yfir því ágæta samfélagi.

Að þessu sögðu langar mig að nefna og halda til haga með hvaða hætti afstaða íslensks atvinnulífs hefur breyst bæði frá því að umsóknin fór inn síðast og á árunum í kjölfarið samanborið við það sem nú er. Af hverju skiptir þetta máli? Það er nú einu sinni þannig að íslenskt atvinnulíf stendur undir öllu sem skiptir máli hér á Íslandi er varðar velferð og þau stuðningskerfi sem við viljum hafa sem sterkust og öflugust til að við getum stutt við annaðhvort okkar minnstu og veikustu borgara eða ýtt undir nýsköpun og annað í þá veruna. Staða atvinnulífsins er allt öðruvísi í dag heldur en hún var á sínum tíma. Við heyrum bara af könnunum frá Samtökum iðnaðarins þar sem töluverður meiri hluti er núna neikvæður sem er snúningur frá því sem áður var. Samtök atvinnulífsins í heild sinni held ég að sé óhætt að segja að séu neikvæð og gjalda varhuga við þeirri vegferð sem áform ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir. Þetta er hlutur sem mér hefur þótt ríkisstjórnin algerlega skauta fram hjá. Það er ekki bara það að stuðningur almennings hafi verið að minnka við þá vegferð sem hér er boðuð í þessari þingsályktunartillögu heldur hefur stuðningur atvinnulífsins gjörbreyst. Þá er stutt í að menn spyrji sig: Fyrir hvern er þetta? Til hvers er þetta allt saman? Svarið blasir við. Þetta er fyrir Viðreisn sem fagnaði nýlega tíu ára afmæli sínu. Þá er rifjað upp að tilefni stofnunar Viðreisnar voru þessi meintu svik við almenning, að almenningur fengi ekki að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. En hvað er þessi ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins núna að boða? Jú, það stefnir í það að það verði bara undir ráðherrum ríkisstjórnarinnar komið núna, með áherslu á forsætisráðherra, hvort almenningur fái að sjá þennan svokallaða samning og hvað þá að kjósa um hann. Þetta ferli allt felur því í sér sömu svik sem voru auðvitað þvæla í umræðunni á sínum tíma. En gefum okkur að Viðreisnarfólkið hafi haft eitthvað til síns máls, þá felur málið í sér núna sömu gerðar svik gagnvart almenningi hvað seinni atkvæðagreiðsluna varðar eins og þau sem eru sögð grundvöllur tilurðar Viðreisnar. Þetta er allt einhvern veginn hálffurðulegt. Viðreisn, heill stjórnmálaflokkur stofnaður í kringum þetta eina mál með þeim rökum að einhver þjóðaratkvæðagreiðsla, sem var auðvitað pólitískur ómöguleiki eins og frægt er orðið, yrði framkvæmd. Þetta er bara staðan sem blasir við núna. Þessir sömu flokkar (Forseti hringir.) segja við almenning: Heyrðu, þið segið já núna 28. ágúst. Svo sjáum við til hvort þið fáið að sjá þennan samning eða hvort þið fáið að kjósa um hann yfir höfuð. (Forseti hringir.) Það væri auðvitað til mikilla bóta ef einhverjir kæmu hér og töluðu fyrir þessu máli og það væri hægt að eiga samtal við stjórnarliða um það sem hér er undir.