157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:18]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Ég hef áður átt orðastað við þann hæstv. forseta sem nú situr í forsetastóli um mikilvægi þess fyrir þessa umræðu að leynd verði aflétt af grundvallargögnum í þessu máli og leyniherbergið opnað, þó ekki væri nema til að alþingismenn geti glöggvað sig á málinu, en ég tel raunar einsýnt að almenningur í landinu eigi rétt á að fá upplýsingar um hvað taki við segi menn já í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hef ekki fengið viðbrögð frá hæstv. forseta og nota því tækifærið nú til að árétta þessa ábendingu mína og spurningu um það hvort hæstv. forseti telji ekki tilefni til að hlutast til um það að Alþingi, sem forseti fer fyrir, hafi allar nauðsynlegar upplýsingar til að taka upplýsta ákvörðun.

Ég hef verið að fara yfir álit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og var að klára að fjalla um kaflann um spurninguna. Næst tekur við kaflinn um tímasetninguna, áformaða tímasetningu fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún er sérkennileg, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Meira að segja landskjörstjórn sá ástæðu til að benda á það að þetta væri ekki að öllu leyti heppilegur tími til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu, í lok ágúst að afloknum júlí og ágúst, sumarmánuðunum á Íslandi og þeir eru nú ekki margir eins og við þekkjum. Reynslan sýnir og það held ég að allir sem hafa verið í stjórnmálum í einhvern dálítinn tíma, þó ekki væri nema eitt eða tvö ár, viti að það er ekki hlaupið að því að efna til pólitískrar umræðu á sumrin á Íslandi. Þjóðmálaumræða leggst að miklu leyti í dvala og það getur reynst afskaplega erfitt að virkja almenning til þátttöku í umræðu um stórpólitísk mál þegar flesta Íslendinga langar einfaldlega að fá að njóta hins skamma íslenska sumars og pólitísk átök, ég tala nú ekki um stór ágreiningsmál og þau verða ekki mikið stærri en þetta, eru eitthvað sem menn vilja fremur afgreiða á öðrum árstíma.

En hvers vegna leggur ríkisstjórnin upp með þessa áætlun um tímasetningu? Ég get ekki dregið aðra ályktun en þá að þetta sé enn eitt dæmið, eiginlega enn ein sönnun þess að þetta snúist í raun um að koma þessu máli sem hraðast í gegn með sem minnstri umræðu því svo ótal margt hefur bent til þess að sú sé einmitt raunin. Það hvernig málið var fyrst kynnt, menn heyrðu fyrst af áformunum í erlendum fjölmiðlum. Svo er þetta kynnt á blaðamannafundi án þess að málið sé sett inn í samráðsgátt stjórnvalda eins og lög gera ráð fyrir. Málið var raunar kynnt áður en þingmenn, þar með talið almennir þingmenn stjórnarmeirihlutans, höfðu fengið að vita af því hvað stæði til. Svo var mælt fyrir málinu hér á Alþingi á fyrsta þingfundadegi eftir kynninguna. Kynningin fór fram á föstudegi, mælt fyrir málinu á mánudegi og dagskrá þingsins rudd að öðru leyti. Svo mikið lá á að koma þessu máli af stað. Svo þekkja menn vonandi eftir umræðuna hér asann sem var hafður á þessu í utanríkismálanefnd, þar sem í sumum tilvikum voru gestir rétt sestir þegar þeir voru beðnir að fara því að það þurfti að afgreiða fleiri á færibandinu. Við þekkjum vonandi líka umræðuna um þá erfiðleika sem hafa verið að fá gögn í málinu. (Forseti hringir.) Allt bendir þetta til hins sama, ber að sama brunni. — Ég verð þá að botna þetta, frú forseti, í næstu ræðu og bið um að vera settur aftur á mælendaskrá.