157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:24]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Nú erum við búin að fara yfir nokkra af þeim punktum sem þarfnast umræðu, en auðvitað ekki nema bara rétt farin að gára vatnið og maður skyldi ætla að í mikilvægasta máli sem íslenskt samfélag hefur staðið frammi fyrir, á fullveldistíma þjóðarinnar í það minnsta, myndu já-ararnir, sem eru stundum kallaðir svo, þ.e. fylgjendur þess að hefja þessa furðuvegferð, mæta hér í þingsal til að takast á við okkur um það sem við erum að færa fram. Hér eru lögð fram hver rökin á fætur öðru um hvað þarf að laga í þessu máli, hvað er að, hvað er illa unnið og hvað mætti betur gera. Ekkert, frú forseti. Engin viðbrögð, enginn ráðherra, engir þingmenn frá meiri hlutanum. Maður skilur ekki, frú forseti, hvað þarf til svo að hér geti átt sér stað eðlileg rökræða við meiri hlutann í þessum þingsal. Við erum búin að leggja hér á borðið fullt af atriðum sem ekki hefur verið svarað.

Forseti hefur meira að segja ekki svarað því, svo mér sé kunnugt um, hvort hún hyggist beita sér fyrir því að gögnunum (Forseti hringir.) sem þessi mikla leynd hvílir yfir, að þeirri leynd verði aflétt. Ég kannast ekki við að hafa fengið svar við því. (Forseti hringir.) Það er bara eitt lítið dæmi af fjöldamörgum dæmum um það sem hefur verið lagt hér fram og það eru engin viðbrögð, engin, frú forseti.