157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:26]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég hef leitast við að nota tækifærið þegar ég hef farið í ræður um málið til að minna hæstv. forseta á beiðnina um að hæstv. forseti hlutist til um það að við fáum aðgang að nauðsynlegum upplýsingum í málinu. Það hef ég gert til að þurfa ekki að koma hér sérstaklega í umræðu um fundarstjórn forseta en miðað við viðbragðaleysi hæstv. forseta veitir ekkert af því. Þessar fimm mínútna ræður gefa auðvitað ekki mikið tækifæri til að fara djúpt í mörg mál og þess vegna hefði ég talið betra að maður þyrfti ekki að nota upphaf ræðu í það að minna á grundvallaratriði málsins. Æskilegra væri þá að hæstv. forseti sýndi einhver viðbrögð en það hefur ekki verið. Viðbrögðin hafa engin verið og því verðum við að koma hingað upp og minna hæstv. forseta á þá beiðni að gögnin verði frelsuð og við fáum að sjá grundvallargögn í þessu máli.