þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langar að taka undir orð og beiðni kollega minna í Miðflokknum um að leynd verði aflétt af þessum gögnum sem liggja í leyniherberginu. Það er nú þannig að til þess að við getum verið fyllilega upplýst um hvað hér er á ferðinni þurfum við að fá aðgang að þessum gögnum. Ég hef engan kost á að kynna mér þetta. Ég á ekki sæti í utanríkismálanefnd. Fyrir utan það finnst mér þjóðin líka eiga rétt á þessum upplýsingum og að kynna sér hvað þarna er á ferðinni. Hvar er málið statt? Á að aflétta leynd af þessum gögnum eða eigum við að tala hér í marga daga í viðbót? Mér er spurn. Ég heyri já hér í hliðarsal. Ætla menn að aflétta leynd af þessum gögnum þannig að við getum kynnt okkur þau og þjóðin geti séð þau? Ef það er eitthvað sem varðar þjóðaröryggi eða (Forseti hringir.) eitthvað slíkt í þessum gögnum, þá er mjög auðvelt mál að strika það út og birta það svo.