157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:28]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Nei er líka svar. Við fáum bara ekkert svar. Ætlar forseti ekki að svara því hvort hún hlutist til um það að leynd verði afnumin af þessum mikilvægu gögnum? Það liggur fyrir að hluti þingmanna má sjá gögnin, aðrir ekki. Ég vil líka benda á það að engir ráðherrar taka hér þátt í þessari umræðu. Sök sé að hv. þingmenn geri það ekki en að hæstv. utanríkisráðherra lofi að taka þátt í umræðunni en geri það ekki er auðvitað fyrir neðan allar hellur og sýnir bara að það átti að keyra þetta í gegn á einu slagorði, treystum þjóðinni, í von um að það yrði engin umræða um þetta mál. Það yrði engin umræða um það hvað það þýddi að fara inn í Evrópusambandið.

Frú forseti. Ég held að ef við fáum engin svör og þeim liggur ekki á að klára þetta mál þá sé alveg hægt að sleppa nefndadegi líka á föstudegi því það á eftir að ræða margt í þessu máli.