157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:29]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum sem hafa leitast eftir því að hæstv. forseti verði við beiðni um að aflétta leynd af þessum gögnum, opna þau og leggja þau fyrir þjóðina. Við treystum þjóðinni, ekki satt? Hvaða gögn eru þetta, frú forseti? Þetta eru einfaldlega gögn um samskipti hæstv. utanríkisráðherra við kommissarana í Brussel undanfarna mánuði og misseri þar sem hún hefur ítrekað farið til Evrópu og hitt þessa ráðamenn til að undirbúa þetta mál sem við erum núna að fjalla um. Þetta eru 297 síður. Hvað gæti hugsanlega verið í þessum gögnum sem krefðist leyndar? Og ef svo væri (Forseti hringir.) — ég var nú í lögreglunni hérna einu sinni og ef það voru einhverjar upplýsingar sem ekki máttu sjást í viðkomandi máli voru þær upplýsingar einfaldlega huldar. Það er bara svo einfalt. (Forseti hringir.) Af hverju treystir hæstv. utanríkisráðherra þjóðinni ekki fyrir þessum gögnum? Af hverju treystir hún ekki þjóðinni fyrir þessu?