157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég þurfti að skjótast norður í land í byrjun dags og er nýlega kominn til baka aftur í þinghúsið og ég verð að viðurkenna að ég hafði hreinlega ekki ímyndunarafl til að láta mér detta í hug að í engu hefði verið brugðist við, ekki einu sinni með nei-i gagnvart sanngjörnum fyrirspurnum, beiðnum og óskum þingmanna stjórnarandstöðunnar. Það kemur mér því leiðinlega á óvart.

Síðan er annað atriði. Það hefur ítrekað verið óskað eftir því að hæstv. utanríkisráðherra taki í fyrsta lagi þátt í umræðunni, en ef ekki a.m.k. hlusti á hana. Hæstv. ráðherra hélt tvær ræður við fyrri umræðu málsins. Við síðari umræðu málsins hefur hæstv. ráðherra ekki sagt orð. Vissulega er viðbragðið við þessu að segja að málið sé í þinglegri meðferð en staðreyndin er sú að mál hæstv. ráðherra hefur breyst. Það hafa komið fram nýir fletir á því, m.a. með því sem hæstv. forsætisráðherra hefur sagt, hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, formaður utanríkismálanefndar og þingflokksformaður Viðreisnar. (Forseti hringir.) Það sem þessir mikilvægu þingmenn og ráðherrar hafa sagt í tengslum við þetta mál hefur breytt málinu. (Forseti hringir.) Þess vegna skiptir máli að það sé hægt að eiga orðastað við hæstv. utanríkisráðherra og ég vil beina því til virðulegs forseta að hlutast til um að ráðherra mæti hér til þessarar umræðu og sitji hér í þingsal.