þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég hef nú mál mitt á að lofa bara ágæta fundarstjórn hingað til. Hérna eru miklar umræður um stórkostlega afdrifaríkt mál fyrir íslenska þjóð. Hér erum við að koma fram með málefnalegar ábendingar, og eru löngu fram komnar, um það sjálfsagða mál að veita frekari upplýsingar a.m.k. um efni þeirra leynigagna sem um ræðir. Þótt ekki væri nema frekari upplýsingar um efni þeirra vegna þess að það skiptir auðvitað máli í úrslitamáli sem þessu sem er, rétt eins og hv. þm. Bergþór Ólason benti réttilega á, að verða aðeins óskýrara nú á allra síðustu dögum í tengslum við yfirlýsingar um nýtilkomin skilyrði ráðamanna í ríkisstjórn fyrir því að þessi samningur verði yfirleitt lagður fyrir þjóðina í síðara skipti. Þar með er ljóst að verið er að fela utanríkisráðherra einfaldlega frítt spil til að semja um þetta fyrir hönd Íslendinga. (Forseti hringir.) Að gögn sem sýna fram á að einhverju leyti, gefa okkur einhverja mynd um það, raunverulega nálgun hæstv. utanríkisráðherra skuli ekki gefin upp veldur óþægindatilfinningu. Það er bara þannig.