157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Eins og ég gat um áðan hefur beiðnum varðandi leynigögnin einfaldlega ekki verið svarað. Hins vegar bárust líka beiðnir, eins og getið var um hér í fyrri umræðu um fundarstjórn forseta, um þátttöku ráðherra í umræðunni. Því var svarað með þeim hætti að í það minnsta væri hæstv. utanríkisráðherra væntanlegur í umræðuna. Þetta var upp úr hádegi í gær, frú forseti. Þá var hæstv. ráðherra sagður upptekinn á fundi en væri væntanlegur og hygðist blanda sér í umræðuna. Hæstv. ráðherra var að vísu settur á mælendaskrá en færði sig neðar og neðar á mælendaskránni og hvarf svo að lokum. Með öðrum orðum, svör hæstv. forseta reyndust ekki rétt. Hæstv. utanríkisráðherra hljóp í felur að nýju. Þess vegna er ástæða til að ítreka báðar spurningar, bæði um leynigögnin (Forseti hringir.) og um þátttöku hæstv. ráðherra í þessari umræðu: Er hennar að vænta eða hafa hæstv. ráðherrar það lítið álit á Alþingi að í þessu stóra máli telji þeir óþarft að þeir blandi sér í umræðuna?