157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:37]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég ítreka óskir okkar um að forseti gangi í það að þessi gögn, þessar tæpu 300 síður, sem liggja í einhverju leyniherbergi, um samskipti íslenskra ráðamanna við ráðamenn í Evrópusambandinu síðustu örfáu mánuði í aðdraganda þessa máls, verði gerð opinber fyrir þjóðinni svo hún geti tekið upplýsta ákvörðun í komandi atkvæðagreiðslu. Það má einnig minnast á það, frú forseti, að ég hélt mína fyrstu ræðu í þessu máli hér fyrr í dag og ég verð að segja það, til upplýsingar fyrir þá sem á horfa, að hér í salnum hefur ekki sést einn ráðherra í allan dag, ekki einn einasti ráðherra undir þessari umræðu og oftast nær eru engir þingmenn í salnum, einstaka sinnum einn eða tveir. (Forseti hringir.) Þeir hafa verið fjarverandi í þessu mikilvægasta máli sem þingið hefur rætt hérna marga síðustu áratugi, (Forseti hringir.) að ganga til liðs við ríkjasamband Evrópu.