157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:39]
Horfa

Snorri Másson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég má til með að koma hér upp að nýju til að ítreka hvatningu mína til yðar að hlutast til með þeim hætti sem þér teljið eiga við um að tekin verði afstaða til þessarar beiðni þótt ekki væri meira en það. Ég hef þær upplýsingar úr utanríkismálanefnd, og sel þær þó ekki dýrari en ég keypti þær og hef það sem sannara reynist ef þær eru ekki réttar, að ekki hafi yfirhöfuð verið kannaður grundvöllur fyrir því hjá mótaðila í þeim samskiptum sem um ræðir við íslenska ríkið hvort tækt væri í þeirra augum að birta upplýsingarnar, þ.e. að menn hafi ekki einu sinni kannað hvort það sé í lagi gagnvart þeim aðilum hjá Evrópusambandinu sem upplýsingarnar tengjast að þeirra vegna sé í lagi að birta þær. Það sýnir auðvitað viljaleysið gagnvart því að upplýsa þing og þjóð (Forseti hringir.) um efni þessara samskipta sem þó skipta verulegu máli þegar við erum að taka afstöðu í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu sem er fram undan.