157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:41]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Það liggur fyrir að hæstv. utanríkisráðherra getur ákveðið að létta trúnaði af gögnum sem sýna samskipti hennar við Evrópusambandið. Hvað sem hún er búin að vera að plana getur ekki verið leyndarmál gagnvart þjóðinni sem hún segist treysta. En hvað gerist hérna í þinginu? Hæstv. utanríkisráðherra mætir ekki í óundirbúnar fyrirspurnir í gær. Hæstv. forsætisráðherra mætir ekki í óundirbúnar fyrirspurnir og ekki heldur hæstv. fjármálaráðherra þannig að við gátum ekki spurt hæstv. ráðherra út í þetta í gær. Okkur var lofað að hæstv. utanríkisráðherra myndi koma til umræðunnar í gær þannig að við gætum átt orðastað við hana. Hún er ekki enn komin til umræðunnar þannig að ég skil ekki þennan áhuga hjá meiri hlutanum á að teygja á þessari umræðu, eða þora þau ekki að standa frammi fyrir eigin ákvörðunum?