þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langar að vitna til ummæla hv. þm. Snorra Mássonar þar sem hann fór yfir það, sem mér var reyndar ekki kunnugt um, að nú hefur verið upplýst að það hefur ekki einu sinni verið óskað viðbragða frá mótaðilanum úti í Brussel um hvort hægt sé að létta trúnaði af þessum skjölum sem geymd eru í leyniherberginu. Ég er undrandi á því að heyra þetta vegna þess að ég stóð í þeirri meiningu að það væri verið að kanna hvað væri hægt að gera. Nú er komið í ljós að það er ekkert verið að gera, ekki neitt. Utanríkisráðherra Viðreisnar ætlar augljóslega ekki að beita sér fyrir því að leynd verði aflétt af þessum gögnum sem þingmenn eiga rétt á því að sjá og þjóðin. Fyrir mér er það núna fullkomlega augljóst að hún hefur ekkert gert til að reyna að hnika þessu máli.