þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Engin eru svörin. Engin eru svörin varðandi afléttingu leyndar af þessum meintu trúnaðarskjölum. Það liggur við að maður sé farinn að ímynda sér hvað komi fram í þeim fyrst ekki er verið að ræða við mótaðilann í Brussel til að aflétta leyndinni. En vegna þess að ég var að vitna til skrifa fyrrverandi ráðherra, Björns Bjarnasonar, varðandi viðtöl ráðamanna þjóðarinnar, annars vegar viðtal utanríkisráðherra Viðreisnar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, við The Guardian og hins vegar viðtal forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, við The New York Times, þá rakst ég á frekari upplýsingar um þessi viðtöl á Facebook-síðu Ernu Bjarnadóttur sem ég held að þingheimi sé vel kunn.
Mig langar að vitna til skrifa hennar á Facebook-síðu sinni af þessu tilefni en þau tengjast heimsókn þessara blaðamanna, með leyfi forseta:
Í febrúar á þessu ári heimsótti blaðamaður frá The New York Times Ísland til að vinna frétt um umræðuna um Evrópusambandið, öryggismál og breytt alþjóðlegt ástand. Blaðamaðurinn kom víða við, eins og sést í fréttinni sem unnin var upp úr ferðinni. Það sem er þó enn áhugaverðara er af hverju The New York Times kýs að sleppa að segja frá þeim sjónarmiðum sem blaðamaðurinn varð áskynja í heimsókn sinni.
Með öðrum orðum: Hér kemur á daginn að blaðamaður The New York Times virðist hafa verið með einhliða umfjöllun í blaðinu. Ég held áfram, með leyfi forseta, að vitna til þessarar Facebook-færslu Ernu Bjarnadóttur varðandi þessa heimsókn:
Í þeirri heimsókn var m.a. rætt við mig, þ.e. Ernu Bjarnadóttur, Hjört J. Guðmundsson og farið í heimsókn á kúabú í Flóanum. Í samtölum sem ég tók hið minnsta þátt í kom skýrt fram að það væri ekki almennt mat þeirra sem hafa efasemdir um aðild Íslands að Evrópusambandinu að ummæli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Grænland fyrr á árinu eða einhver ný staða í alþjóðamálum hefðu einhver áhrif á afstöðu þeirra.
Eftir heimsóknina í Flóann fór blaðamaðurinn þaðan beint á fund forsætisráðherra. Í frétt The New York Times er sagan hins vegar algerlega einhliða og einblínt á þessa geopólitísku stöðu sem var mikið til umræðu í upphafi ársins.
Þetta þykir mér sæta svolitlum tíðindum. Hvers vegna ætti The New York Times að vera með einhliða umfjöllun um stöðu mála? Ég hlýt að velta því fyrir mér hvort fréttin og skrifin séu keypt. Mér finnst þetta undarlegt. Ég ætla ekki að lesa lokaorðin í Facebook-færslu Ernu Bjarnadóttur þar sem hún fjallar um fjósalykt en þetta þykir mér engu að síður mjög áhugavert og ég hvet fólk til að kynna sér þessa Facebook-færslu hennar.
En hvers vegna stöndum við hérna? Það er von að fólk velti því kannski fyrir sér. Við stöndum hérna vegna þess að við teljum að það sé ótal margt sem enn á eftir að koma fyrir augu fólks hvað þetta mál varðar. Við viljum að það verði aflétt leynd af mikilvægum upplýsingum um samskipti sem skiptir miklu að landsmenn hafi aðgang að til þess að móta sér afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fyrir liggur, ég sé að hæstv. utanríkisráðherra er hér í dyragættinni, að hæstv. ráðherra var gerð afturreka með upphaflegu spurninguna í þessari þingsályktunartillögu, og (Forseti hringir.) af hverju ætti þetta mál ekki að geta tekið frekari breytingum til batnaðar? Af hverju liggur svona mikið á? (Forseti hringir.) Það liggur bara ekkert á, bara ekki neitt, bara nákvæmlega ekki neitt. — Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.