157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra hvarf eins og dögg fyrir sólu héðan úr hliðarherbergi þegar hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir byrjaði að beina spurningum til hæstv. ráðherra. Kannski skiljanlega en í ljósi þess að hæstv. ráðherra kom hér í hliðarsal mjög tímabundið þá ætla ég að taka sénsinn á að hæstv. ráðherra sé að hlusta einhvers staðar í húsinu. Ef hæstv. ráðherra lætur svo lítið að koma hingað til umræðunnar á eftir þá langar mig, þó að það verði ekki í andsvari við mig núna, til þess að skilja eftir þessa spurningu sem ég ber fram til hæstv. ráðherra: Telur hæstv. ráðherra ekki ástæðu til að ávarpa sérstaklega í framhaldsnefndaráliti annaðhvort hv. utanríkismálanefndar eða hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þær breytingar sem hafa orðið á málinu frá því að hæstv. ráðherra mælti fyrir því hér við fyrri umræðu málsins? Það hafa orðið augljósar breytingar á málinu. Það var kynnt hér tvöfalt ferli, tveggja þrepa nálgun, atkvæðagreiðsla 29. ágúst og síðan önnur atkvæðagreiðsla um samning að afloknum þeim viðræðum, það er það sem stendur í þingsályktunartillögunni. Síðan hafa mætt hér í ræður hæstv. forsætisráðherra, hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hv. formaður utanríkismálanefndar og hv. þingflokksformaður Viðreisnar. Þessir fjórir þingmenn og ráðherrar hafa lýst allt öðru ferli en skrifað er út í þingsályktunartillögunni. Mér þykir upp á það að reyna að hafa upplýsingaóreiðu sem minnsta í raun lágmark að önnur hvor þessarar nefndar ávarpi það, nema vera vildi að það væri sameiginlegt framhaldsnefndarálit utanríkismálanefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þar sem yrði leidd í jörðu þessi breytta staða, að skyndilega horfi menn fram á þriggja fasa ferli en ekki tveggja fasa þar sem viðbótarfasinn gengur út á eitthvert huglægt mat hæstv. forsætisráðherra eða einstakra ráðherra eða ríkisstjórnarinnar í heild sinni. Okkur er ekki ljóst hvernig þessi breyting verður útfærð. Það eina sem er ljóst er að breytingin er greinileg og afgerandi sem endar þannig að ef fólk segir já 29. ágúst, þá þýðir það ekkert að fólk fái að sjá samning, kíkja í pakkann og sjá hvað er í boði, heldur þýðir það að forsætisráðherra eða ríkisstjórnin eða einstaka ráðherrar, hvernig sem þetta verður útfært, þetta huglæga mat, þessir einstaklingar fá að leggja mat á þetta. Þetta þykir mér algjörlega blasa við að þurfi að færa í texta í framhaldsnefndaráliti þar sem það er rammað inn hver þessi breyttu áhrif eru og hvernig þetta verður útfært.

Þess vegna, ef hæstv. ráðherra kemur hér einhvern tímann í ræðu, vil ég biðja hæstv. ráðherra að svara þessari spurningu. Spurningin er: Telur hæstv. utanríkisráðherra forsvaranlegt að þetta sé ekki ávarpað í nefndaráliti í ljósi þeirrar breytingar sem þetta kallar fram á málinu öllu, að málið sé allt í einu orðið þriggja þrepa en ekki tveggja þrepa með algerlega óljósa stöðu þess að almenningur fái að taka afstöðu til samnings í seinni umferðinni svokölluðu eins og þingsályktunartillagan stillir málinu upp? Ef hæstv. utanríkisráðherra er að hlusta hér í húsinu einhvers staðar þá beini ég þessari spurningu náðarsamlegast til yðar.