þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég ætla fyrst aðeins að ræða þessi gögn sem við höfum verið að kalla eftir, tilurð gagnanna. Þetta eru gögn sem hv. utanríkismálanefnd óskaði eftir frá utanríkisráðuneytinu um samskipti íslenskra ráðamanna við ráðamenn í Evrópusambandinu. Þessara gagna var óskað undir rekstri þessa máls, gögn sem tengdust þessu máli, þ.e. þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þannig að gögnin eru til komin vegna þessa máls. Þessi gögn telja tæpar 300 bls. og eru geymd í einhvers konar leyniherbergi hér í þinginu og enginn má skoða þau nema nefndarmenn utanríkismálanefndar og þá með fororði um algjöran trúnað. Þeir mega að sjálfsögðu ekki taka þessi gögn með sér eitt eða neitt, þeir mega bara skoða þau og heita á móti algjörum trúnaði.
Samskipti íslenskra ráðamanna við Evrópusambandið síðasta eitt og hálft árið eða frá því þessi ríkisstjórn tók til valda er raunverulega innihald gagnanna. Hver gætu þessi gögn verið, herra forseti? Hvaða gögn gætu þetta verið? Ég hef ekki hugmynd um það, ég hef ekkert heyrt af þeim eða séð þau en þetta hljóta einfaldlega að vera bréfaskipti íslenskra ráðamanna til Evrópusambandsins, til Brussel, bréfaskriftir Evrópusambandsins hingað heim; fyrirspurnir á víxl þar sem verið er að spyrja um eitt og annað sem ég gæti svo sem giskað á, en einnig hugsanlega fundargerðir. Nú vitum við að hæstv. utanríkisráðherra hefur verið tíður gestur úti í Evrópu undanfarna mánuði þar sem þetta hefur augljóslega oft borið á góma og sumt af því hefur komið í fréttum. Hæstv. utanríkisráðherra hefur því átt fjölda funda með hinum og þessum ráðamönnum í Evrópu, þannig að ég ímynda mér að eitthvað af þessu séu fundargerðir frá þeim fundum. Hvað gæti verið að finna þarna, herra forseti? Ég get ímyndað mér að íslensk stjórnvöld myndu vilja spyrja Evrópusambandið um ýmislegt, t.d. um það hvernig þessar aðildarviðræður 2009–2013 fóru, hvernig þær voru dregnar til baka eða afturkallaðar, svör við því. Einnig gætu íslenskir ráðamenn verið að spyrja að því hvernig tilhögun hugsanlegra viðræðna yrði, tímalengd og fleira; í hvaða röð samningskaflarnir yrðu teknir, hversu margar nefndir yrðu að vera, hvað menn ímynduðu sér að þetta tæki langan tíma, hversu strembið þetta gæti orðið í hverjum kafla fyrir sig o.s.frv. Svör við þessu gætu hafa borist og væri að finna í þessum leyniskjölum.
Mergur málsins er sá, herra forseti, að þarna er einungis að finna upplýsingar um atriði sem hvorugur aðilinn þyrfti að halda leyndum, þar sem báðir aðilar vita einfaldlega að þeir eru að fara að setjast niður við samningaborð. Þeir eru að fara að setjast niður við samningaborð og munu því væntanlega ekki gefa mótaðilanum upp neinar þær upplýsingar sem þeir, hvor um sig, vilja halda leyndum fyrir hinum þar til að viðræðunum kemur. Ég get því ekki séð, herra forseti, að þarna sé um eitthvert viðkvæmt innihald að ræða. Ég get því ekki ályktað annað en að hér sé um að ræða hráar upplýsingar um staðreyndir eða ágiskanir aðila um tímalengd viðræðna og fyrirkomulag þeirra. Af hverju þessi leynd? Af hverju er hún nauðsynleg, herra forseti? Ef eitthvað er þarna mjög viðkvæmt þá er hægt að halda því frá með yfirstrikunum eða einhverju slíku. Af hverju að leyna þessu? Af hverju að leyna þessum samskiptum fyrir þjóðinni, herra forseti? Í aðdraganda mikilvægustu þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi í áratugi treystir ríkisstjórnin þjóðinni ekki til að sjá upplýsingar um svona einföld samskipti eins og má að öllum líkindum ætla að þarna sé að finna.