þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hér ræðum við þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er mál sem var ekki á þingmálalista. Þetta er mál sem var ekki sett í samráðsgátt. Þetta er mál sem var ekki kynnt í utanríkismálanefnd áður en þessi tillaga var lögð fram hér á þingi. Hins vegar virðast áform um þetta hafa verið tilkynnt víða erlendis áður en nokkur hér innan lands vissi af því hvað stóð til, alla vega ekki þingheimur, alla vega ekki sú sem hér stendur. Síðan hefur það komið á daginn að það er engu svarað. Það er hér leyniherbergi í húsinu þar sem gögn eru geymd sem níu þjóðkjörnir fulltrúar hafa heimild til þess að skoða, þ.e. aðalmenn í utanríkismálanefnd. Þeir hafa kost á því að skoða þessi gögn gegn því að til þeirra verði ekki vitnað eða rætt við annað fólk um aldur og ævi. Það er náttúrlega óásættanlegt og bara furðulegt að svona sé borið á borð í svo stóru máli sem þetta er. Þannig að auðvitað hlýtur maður að spyrja sig: Hvað er í þessum gögnum sem ekki getur komið fyrir augu þingmanna, sem þó eru eingöngu bundnir af samvisku sinni, hafa undirritað drengskaparheit? Þingmönnum hlýtur að vera treyst fyrir þessum upplýsingum, fyrir utan það að þessi ríkisstjórn sem hér er við völd og forvígismenn stjórnmálaflokkanna, sérstaklega er ég að vitna til hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra sem hafa ítrekað sagt að þær treysti þjóðinni — fyrir hverju treysta þær þjóðinni? Þær treysta þjóðinni greinilega ekki fyrir upplýsingum. Mér sýnist það vera fullkomlega augljóst mál að þær treysta þjóðinni fyrir einhverju öðru en upplýsingum. Það er sorglegt.
Þessi þingsályktunartillaga sem hér er, þetta þunnildi, og greinargerð með henni telur ekki heldur margar blaðsíður. Þar er ekki að finna neitt nýtt í rauninni nema kannski aðeins svona ja, minni upplýsingar en hjá Jóhönnustjórninni hinni fyrri. Þar er ekki að finna hér rauðar línur. Það er ekki að finna hér nokkurn skapaðan hlut sem þarf að bera á borð áður en farið er í samningaviðræður. Þannig að íslensk þjóð veit í raun og veru ekki, og varla þingmenn, hvað verður ef þjóðin segir já í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem áformað er að fari fram í lok ágúst. Hver eru samningsmarkmiðin? Það kemur ekki einu sinni fram. Þetta miðar því allt saman að því að fá íslenska þjóð til að samþykkja, liggur við með bundið fyrir augun, að kíkja í pakkann án þess að hafa allar þær upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa til að geta tekið slíka ákvörðun eins og samningsmarkmið og rauðar línur. Er það virkilega þannig að ríkisstjórnin treystir sér ekki til að segja hér fullum fetum að rauðar línur verði dregnar um auðlindir þjóðarinnar, fiskimiðin t.d., orkuna okkar? Treystir hún sér ekki til að segja það upphátt eða vill hún ekki segja það upphátt? Utanríkisráðherra Viðreisnar er náttúrlega fullkunnugt um og formanni Samfylkingarinnar líka, hæstv. forsætisráðherra, að það eru engar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Það er kannski þess vegna sem ekkert af þessu er sett fram vegna þess að innst inni vita þær betur. Síðan á náttúrlega Flokkur fólksins aðild að þessari ríkisstjórn (Forseti hringir.) líka sem hefur greinilega kosið að tjá sig ekkert, ekki frekar en aðrir þeir flokkar sem eiga aðild að þessari ríkisstjórn. (Forseti hringir.) Flokkur fólksins segir ekkert vegna þess að þetta er greinilega kaup kaups, þögn er keypt hjá Flokki fólksins fyrir grásleppu og annað slíkt. — Ég óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá.